júlí 01, 2008
að búast til ferðar

ferðinni er heitið til omaha, nebraska . tilefnið er brúðkaup skólasystur minnar þar sem ég mun hafa nokkuð mikilvægu hlutverki að gegna; að standa við hlið hinna brúðarmeyjanna í limegrænum kjól með lillabláu belti þann 5. júlí næstkomandi. þetta verður jómfrúarskipti mitt sem brúðarmey og ég er þó nokkuð spennt. ég hef aldrei komið til 'middle-of-america' og get ekki sagt að biblíubeltið hafi heillað hingað til en spurning hvort rehearsal dinner, 4th of july barbeque og sameiginlegur hárblástur á amerískri hair salon 2 klst fyrir athöfn breyti því ekki snarlega. það kemur amk í ljós á næstu dögum.
Posted by audur at 03:02 EH | Comments (2792)