maí 28, 2007

heima


í sumar.

Posted by audur at 11:35 FH | Comments (2792)

maí 20, 2007

ó já

Posted by audur at 10:51 EH | Comments (2792)

maí 07, 2007

ó nei

síminn minn er slasaður. hann lenti í því óláni að fá yfir sig smávegis af thailenskri sósu og er skemmst frá því að segja að hann var ekki hress með þetta rauða karrý. því vil ég benda þeim sem vilja tala við mig á að hringja í heimasímann framvegis, +646 649 2303.
með vinsemd & virðingu,
hans klaufi símaböðulsson.

Posted by audur at 08:18 FH | Comments (2792)

maí 03, 2007

ísland björk -best í heimi.

ég fór á björk í gærkvöldi. BESTU TÓNLEIKAR Í SÖGU TÓNLEIKA. mig langar aftur og aftur og aftur. nýja platan er frábær og björk er snillingur. við halli sátum í bestu sætum radio city music hall og til marks um lúxusinn á okkur þá sat elijah wood 4 sætaröðum aftar. becca og rachael, vinkonur mínar úr skólanum, fóru að skæla sökum geðshræringar og afbrýðissemi þegar ég sagði þeim frá því hvar ég hefði setið í salnum á tónleikunum. þær höfðu vaktað ticketmaster.com í marga tíma áður en miðar á tónleikana fóru í sölu og fengu rétt miða í næstöftustu röð.
guði sé lof fyrir ísland og alla þrjúhundruðþúsund íbúa þess. mestustu og bestustu þakkir fær næstbesti trompetleikari íslands og sérstakt knús fær núminnhennarsöruminnar fyrir að taka okkur halla með í eftirpartý og eftir-eftirpartý. það var svooo gaman.

hér skrifar jónas sen um ævintýri bjarkar, brasspíanna og bandsins 'on the road'.

hér er smá vídjó frá tónleikunum sem ég fann á youtube þrátt fyrir að myndavélar og upptökutæki hvers konar hefðu verið bönnuð ...

all is full of love.

og eftir þetta ólýsanlega æðislega show er ég full af ást. björk er best í heimi.

Posted by audur at 11:41 EH | Comments (2792)

maí 01, 2007

Posted by audur at 08:31 EH | Comments (2792)