apríl 23, 2007
loksins

Posted by audur at 03:31 EH | Comments (2792)
apríl 21, 2007
vikan í myndum.
við fórum á opnun á ljósmyndasýningu önnu pálma á green street.


við tókum subway númer 6. fórum út á 68.stræti. skoðuðum nýju tom ford búðina. reuters tók viðtal við mig.

við fengum okkur bestu pizzu í newyork. keyptum nokkur lög í glymskrattanum. drukkum mikið ódýrt rauðvín í litlum glösum. töluðum um að það vantaði svona stað í reykjavík.


löbbuðum niður 6.avenue. ari vildi taka mynd. ég vildi taka leigubíl.

borðuðum dumplings (sem skv. ordabok.is er soðkaka á íslensku) og allskyns á kelley og peng á bowery.

fórum í chelsea market. borðuðum lífræna hollustusúpu í hádegismat. fengum okkur svo brownies í desert.

á horni prince og bowery.

Posted by audur at 01:53 FH | Comments (4724)
apríl 19, 2007
vá
hvað ég er lélegur bloggari. stórkostlega slöpp frammistaða verður að segjast. og engin haldbær afsökun fyrir hendi. passar samt að þegar verkefnaskil og ritgerðarsmíðar eru yfirvofandi að það finnist lífsmark hér.
mamma sendi mér þessa mynd af mér.
takk fyrir að minna mig á þá grátlegu staðreynd að tuttugu ár eru liðin síðan myndin var tekin og enn vantar mig þessar tennur.
Posted by audur at 11:46 EH | Comments (5269)
apríl 03, 2007
spænska inflúensan

lifir góðu lífi hér á tuttugastaogfyrstastræti newyork borgar. í dag er 6.dagur í flensu. brjálað stuð eins og þið getið ímyndað ykkur. og þrátt fyrir öll dásamlegu apótekin hér í borg þá get ég ekki fengið bestu pillurnar því ég á ekki NY STATE ID. já mikið rétt, maður þarf að sýna skilríki gefið út af bandarískum yfirvöldum til þess að kaupa ákveðnar flensupillur og ofnæmislyf. litla óskiljanlega "alþjóðlega" ökuskírteinið mitt sem er bara á íslensku dugar ekki. ég er oft búin að blóta sjálfri mér fyrir að vera ekki búin að druslast til að fá mér svona ny state id. það væri oft mjög hentugt að hafa svoleiðis því ég hef enn ekki hitt neinn innfæddan sem skilur íslensku. en vesenið að verða sér út um eitt slíkt er skemmtilega ótrúlegt. fyrst þyrfti ég að sækja um social security númer en til þess að geta fengið ssn þá þyrfti ég að vera með atvinnutilboð (og til þess að vera eligible til að vinna og fá þ.a.l. atvinnutilboð þarf maður að vera löglegur í landinu -- sama sem no win situation) ok. þegar ég væri búin að sækja um ssn og fá synjum þyrfti ég að fara með þá pappíra (sem samtals vega í kringum 30kg) í department of motor vehicles og sækja um ny state id. þetta ferli tekur svona 2-3 mánuði. ég trúi ekki öðru en að ég verði orðin hress af flensunni í júlí.
Posted by audur at 02:51 EH | Comments (2795)