febrúar 24, 2007

hjúkket

leitinni að hinum fullkomna brúðarkjól er lokið.

hér eru hins vegar nokkrir fallegir fyrir þær sem ekki geta beðið fram í júní.


og svo á brúðarmeyjarnar.


Posted by audur at 01:22 FH | Comments (2792)

febrúar 22, 2007

það er árið 2007 sko.

í fyrsta skiptið núna í ár mun konan sem sigrar á wimbledon mótinu í tennis fá jafn háa vinningsfjárhæð og karlinn. roger federer sem sigraði í fyrra í einliðaleik karla fékk sem svarar 50þús dollurum meira (3.5milljónir ISK) í verðlaun en amelie mauresmo sem sigraði í einliðaleik kvenna. opna franska meistaramótið borgaði jafn háa vinninga til karla og kvenna í fyrsta skiptið í fyrra.
og svo finnst mörgum sem alvöru árangur hafi náðst í jafnréttisbaráttunni. einmitt.

Posted by audur at 12:16 EH | Comments (2792)

febrúar 20, 2007

lost in transit

ég er í boston, nánar tiltekið fyrir framan hlið b24 á logan international airport að bíða eftir flugi til new york sem nú þegar er búið að seinka þrisvar. hér er meiriháttar stemmning eins og þið getið ímyndað ykkur. ég var hinsvegar í svaka stemmningu (lesist tipsy) í vélinni hingað enda ekki annað hægt eftir að hafa sötrað kampavín í boði besta starfsmanns icelandair. þar að auki var autt sæti á milli mín og næsta farþega sem gerði ferðalagið enn betra. þessi leggur var því 180 gráðu viðsnúningur frá ferðalaginu til íslands. í þeirri vél voru nefnilega í kringum 50 fimmtán ára amerískar fótboltastelpur með tilheyrandi hlátursköstum, njálgi og veseni. ég sat í röðinni fyrir framan þjálfarana þeirra sem gerði það svæði óbærilega vinsælt.

í öryggisleitinni hér í boston var tekinn af mér varasalvi því hann var ekki í zip-loc plastpoka. (ég var líka með hann í töskunni á leiðinni til boston en það er greinilega ekki jafn hættulegt að fljúga með blistex yfir atlantshafið og yfir nokkur fylki í usa...) mér bauðst að fara alla leið tilbaka og fá poka undir herlegheitin og fara í gegnum allt ferlið aftur og þannig halda varasalvanum en ég afþakkaði það pent. ég spurði hinsvegar hvort ég mætti fá mér smá á varirnar svona for the road en nei þá var það ekki hægt."svæðið er sterílt" sagði starfsmaðurinn ergilega. einmitt. rétt í þessu var lítil mús að hlaupa framhjá.

Posted by audur at 08:31 EH | Comments (2792)

febrúar 19, 2007

farin til boston

Posted by audur at 07:59 EH | Comments (2792)

febrúar 14, 2007

♥ is in the air

ég fékk æðislegan valentínusarpakka, flugmiða til íslands - með brottför á morgun! ég verð því heima í hlýjunni á íslandi um helgina. get ekki beðið.

þessar tvær yngismeyjar eru afmælisbörn, önnur í dag, hin fyrir tæpri viku og mig langaði að óska þeim hjartanlega til hamingju með þennan áfanga. nú eru 12 ár liðin frá því við byrjuðum í menntaskóla og 12 ár þar til við verðum fertugar. nokkuð gott.


Posted by audur at 11:21 EH | Comments (2792)

febrúar 13, 2007

i ♥ ny ... but

í tilefni þess að það á að snjóa á morgun þá keypti ég mér bikini. ég hélt ég væri ýmsu vön being icelandic and all en nei. ég er aumingi því ég er lögst í þunglyndi yfir veðrinu.

og talandi um kraftgalla ... i am lost for words.

en sjáiði hvað þetta er fínt:

smá reality check er samt mjög nauðsynlegt:
1 (sjá portfolio og before/after til dæmis)
og
2

Posted by audur at 02:44 FH | Comments (2792)

febrúar 12, 2007

ókei

stórkostlega lélegur árangur í bloggskrifum verð ég að viðurkenna. eru skammarverðlaun?
kamilla og heiður eru búnar að vera í heimsókn. komu 1.feb og fóru í dag. ótrúlega gaman og við vorum ennþá vinkonur þegar þær fóru þrátt fyrir að hafa deilt 20fermetrunum mínum allan þennan tíma. síðast þegar kamilla kom í heimsókn þá kom hitabylgja í nóvember en núna var þessu öfugt farið og gott ef kuldamet var ekki slegið í þessari viku. mig langar því til að leggja inn litla pöntun á sólskini og nokkrum gráðum. ég bið ekki um mikið, kannski bara hitastig ofan við frostmark?
svo langar mig líka að byrja að æfa ballet. og í skrifborðsstól. og svona:


og svona:

takk fyrir.

Posted by audur at 01:48 FH | Comments (2792)