janúar 26, 2007
frost og almenn fúlindi
jæja. ég komin aftur til new york. tveimur tönnum fátækari en þegar ég fór frá new york en einum gamalmenna gómi 'ríkari'. bömmer en ég trúi ekki öðru en að ég muni kætast með vorinu.
svo var ég að fara í gegnum gamlar nótur frá jólainnkaupunum og fann þar nótu úr barney's. þar var ég að velja manolo skó sem móðursystir mín fékk í jólagjöf frá eiginmanninum. ari var með mér og við höfðum verið að ganga frá jólagjöfum og vorum því með nokkra poka meðferðis en ekkert out of the ordinary miðað við að það voru bara 3 dagar til jóla. nema hvað, ég er eitthvað að skoða þessa nótu í fyrradag og rek augun í eftirfarandi: "customer/ german tourist" WHAT?!?! ég? og þýskur túristi? þeir eru verstir allra túrista. fara á fætur um miðjar nætur til að frátaka bekki við sundlaugabakkana, fara svo aftur upp á hótelherbergi og sofa til hádegis. oj. ég er alvarlega að hugsa um að boycotta barney's. spurning hvort það verði rekstrarhalli.
state of the union var flutt núna um daginn. bush var sumsé í beinni útsendingu á öllum sjónvarpsstöðvum að biðja um þolinmæði demókrata við áætlunum sínum í írak. nema hvað, síðan bush jr. varð forseti hefur það tíðkast að hann veiti þingmönnum eiginhandaráritanir eftir ávarpið! hann eyddi því nokkrum klukkutímum í að skrifa nafnið sitt á kokteilservíettur öldungardeildarþingmanna bandaríkjastjórnar. hvaða rugl er það eiginlega? hvernig er hægt að taka þá alvarlega þegar þingmennirnir haga sér eins og ástsjúkar grúppíur og forsetinn eins og tom cruise. alveg spes.
svo var líka mjög pirrandi fréttaflutningur sem tengdist nancy pelosi. hún er sumsé fyrsta konan sem gegnir starfi speaker of the house of representatives (hvað sem það nú myndi útleggjast á íslensku). það var nefnilega meira talað um í hverju hún var heldur en það sem hún sagði í ræðunni sinni. sjálf hef ég áhuga á fallegum fötum og almennum smartheitum en kommon. ég veit ekki til þess að jakkaföt þingmanna hafi verið tilefni til spjallþátta hingað til. eða hvort skrifaðar hafi verið greinar um hvort dökkblá eða dökkgrá jakkaföt segi þetta eða hitt.
en yfir í aðra sálma. það var 15stiga frost í new york í dag. ég saknaði gamla kraftgallans míns.
Posted by audur at 10:26 EH | Comments (2792)
janúar 02, 2007
nú árið er liðið...
ég biðst afsökunar á að hafa neytt lesendur til að horfa á jolie-pitt börnin í heilar 3 vikur. þau eru vissulega sæt en ég viðurkenni fúslega að þetta var nú óþarflega langur tími. þarna síðustu dagana fyrir jól var ég bara svolítið upptekin, rembdist við ritgerðarskrif sem gengu hægt og niðurstaðan slík að seint verður talin til merkra afreka. og á milli þess sem ég ímyndaði mér sem ég væri í miðjum pulitzer skrifum þá var ég í jólainnkaupum fyrir alla nema mig. ari greyið fékk eiginlega enga jólagjöf frá mér því enginn tími gafst til svoleiðis lúxusheita. hins vegar fengu að ég held næstum allar konur í fjölskyldunni minni sérvalda gjöf (af mér) frá eiginmanninum í jólagjöf. og ef marka má eftirspurn fyrir þessi jól held ég að ég opni fyrirtæki fyrir þau næstu og geri alvöru bissness úr þessu bara.
þétt og spennandi dagskrá á nýju ári, þrjár útskriftir í vor ef allt gengur að óskum, stórafmæli í hverjum mánuði næstum, skíðaparadís ítalíu heimsótt í mars og aldrei að vita nema eitthvað enn skemmtilegra verði planlagt síðar á árinu...

gleðilegt nýtt ár og takk fyrir gömlu.
og svo að lokum til að svara vinsælustu spurningunni þá er brottfarardagur ekki kominn á hreint. verður sennilega í kringum 20. janúar þar sem skólinn byrjar aftur mánudaginn 22.janúar. sé frekari upplýsinga óskað um brottför mína aftur til new york eða bara ef þið viljið vera memm þá er hægt að ná í mig í gamla númerinu mínu; 6988511...
Posted by audur at 06:54 EH | Comments (2792)