desember 14, 2006

oh my goodness


Posted by audur at 01:02 FH | Comments (2792)

desember 12, 2006

66N á styledotcom

"Icelanders—being geographically isolated and subject to environmental extremes—have a vested interest in finding ways to stay toasty..."
sjá meira hér.

Posted by audur at 04:32 FH | Comments (2792)

desember 09, 2006

mummi átti lítil lamb

og íslenskt lamb í þokkabót. hann var svo indæll að bjóða mér í mat í gærkvöldi. íslenskt lambalæri úr whole foods með brúnuðum karöflum og sósu og rauðkáli sem hann fann!! (ekki alveg eins og íslenskt ora rauðkál en nógu líkt til að það hyrfi ofan í bumbuna mína á ógnarhraða) íslenskur sunnudagsmatur á föstudegi á 181. stræti manhattan eyju. dí-líssh. íslensku jólalögin voru líka ljúffeng eyrnakonfekt. vilhjálmur og ellý voru snillingar. og whole foods á þakkir skildar fyrir litla lambið. og mummi fyrir að finna það innan um allt gúmmelaðið í whole foods....

whole foods vs. íslensk stjórnvöld; 14-2.

á lestarstöðinni þar sem ég beið eftir a lestinni hitti ég rottu. ekki bara sá rottu því það er ekkert sérlega fréttnæmt (þær hljóta að hafa það voða gott á lestarteinunum). þessi sem ég hitti var bara í mestu makindum að rölta og ráfa um lestarpallinn. kannski að bíða eftir a lestinni eins og ég. ég veit ekki. en henni leiddist eitthvað biðin og ákvað því að klifra upp í nærliggjandi ruslatunnu. hana hefur kannski langað í gamalt tyggjó eða verið að heimsækja vini sína og börn. god only knows. hinsvegar virtist ég vera sú eina sem fannst þessi heimsókn hennar vera heldur truflandi. er það ekki svolítið truflandi?

Posted by audur at 04:17 EH | Comments (2792)

desember 07, 2006

tomorrow, tomorrow

ég fór að sjá annie (söngleikinn) í gær ásamt öllum hinum 7 ára stelpunum á manhattan. það var æði. en vá hvað ég var búin að gleyma hversu mikið 7 ára stelpur þurfa að tala. sú sem sat beint fyrir aftan mig tók að sér, óumbeðið, að vera sögumaður sýningarinnar. hún lýsti í smáatriðum hvað hefði verið að gerast og hvað væri að fara að gerast, söng með, talaði með, talaði um hvernig bíómyndin væri öðruvísi og inn á milli um allskonar snakk og sæta hvolpa.
en sýningin vakti upp ljúfar minningar. ég fór með mömmu að sjá þessa sýningu fyrir 23árum!!! man reyndar eftir litlu öðru frá þeirri sýningu en uppklappinu en það dugar alveg. svo fór ég að skæla. en þetta er nýtt hjá mér, svona skæl í tíma og ótíma. ég skældi strax í byrjun þegar annie söng 'maybe' og svo aftur þegar hundurinn sandy var kynntur til sögunnar (hey, hann var ýkt flinkur og duglegur og sætur) og svo smá þegar 'tomorrow' var sungið og já well you get the point. en þetta var æði. og hressandi að fara í leikhús svona klukkan 2 á miðvikudagseftirmiðdegi.

Posted by audur at 12:22 FH | Comments (2792)

desember 04, 2006

ég elska

þetta blað.

svo falleg forsíða.

og falleg fyrirsætan.

og pennar þessa blaðs kunna að gera smekklegar greinar um þá þykja smart....

Posted by audur at 12:39 FH | Comments (2792)