nóvember 29, 2006
frjáls palestína!

29. nóvember er alþjóðlegur samstöðudagur sameinuðu þjóðanna með réttindarbaráttu palestínsku þjóðarinnar.
ég gúlaði smá og ef maður er mikið fyrir svona sþ daga, þá er hér (að ég held) nokkuð tæmandi listi:
27 January - International Day of Commemoration in memory of the victims of the Holocaust
21 February - International Mother Language Day
8 March - United Nations Day for Women's Rights and International Peace (International Women’s Day)
21 March - International Day for the Elimination of Racial Discrimination
Beginning - 21 March - Week of Solidarity with the Peoples Struggling against Racism and Racial Discrimination
22 March - World Day for Water
23 March - World Meteorological Day
In April 2007 - United Nations Global Road Safety Week
4 April - International Day for Mine Awareness and Assistance in Mine Action
7 April - World Health Day
23 April - World Book and Copyright Day
3 May - World Press Freedom Day
8 and 9 May - Time of Remembrance and Reconciliation for Those Who Lost Their Lives during the Second World War
15 May - International Day of Families
17 May - World Telecommunication Day
21 May - World Day for Cultural Diversity for Dialogue and Development
22 May - International Day for Biological Diversity
Beginning - 25 May - Week of Solidarity with the Peoples of Non-Self-Governing Territories
29 May - International Day of United Nations Peacekeepers
31 May - World No-Tobacco Day
4 June - International Day of Innocent Children Victims of Aggression
5 June - World Environment Day
17 June - World Day to Combat Desertification and Drought
20 June - World Refugee Day
23 June - United Nations Public Service Day
26 June - International Day against Drug Abuse and Illicit Trafficking
26 June - International Day in Support of Victims of Torture
1 July - International Day of Cooperatives (first Saturday of July)
11 July - World Population Day
9 August (through 9 August 2014) - International Day of the World’s Indigenous People
12 August - International Youth Day
23 August - International Day for the Remembrance of the Slave Trade and Its Abolition
8 September - International Literacy Day
16 September - International Day for the Preservation of the Ozone Layer
21 September - International Day of Peace
September - World Maritime Day (during last week of September)
1 October - International Day of Older Persons
2 October - World Habitat Day (first Monday of October)
4-10 October - World Space Week
5 October - World Teachers’ Day
9 October - World Post Day
10 October - World Mental Health Day
11 October - International Day for Natural Disaster Reduction (second Wednesday of October)
16 October - World Food Day
17 October - International Day for the Eradication of Poverty
24 October - United Nations Day
24 October - World Development Information Day
24-30 October - Disarmament Week
6 November - International Day for Preventing the Exploitation of the Environment in War and Armed Conflict
16 November - International Day for Tolerance
19 November - World Day of Remembrance for Road Traffic Victims (third Sunday of November, annually)
20 November - Africa Industrialization Day
20 November - Universal Children's Day
21 November - World Television Day
25 November - International Day for the Elimination of Violence against Women
29 November - International Day of Solidarity with the Palestinian People
1 December - World AIDS Day
2 December - International Day for the Abolition of Slavery
3 December - International Day of Disabled Persons
5 December - International Volunteer Day for Economic and Social Development
7 December - International Civil Aviation Day
10 December - Human Rights Day
11 December - International Mountain Day
18 December - International Migrants Day
19 December - United Nations Day for South-South Cooperation
20 December - International Human Solidarity Day
sumsé nóg framboð af kokteilboðum fyrir sendifulltrúana.
Posted by audur at 04:32 FH | Comments (2793)
nóvember 27, 2006
hot stuff






Posted by audur at 01:42 FH | Comments (6648)
nóvember 26, 2006
happy givingthanks
komin heim úr ískaldri 'sveitinni'. mér hefur ekki verið svona kalt síðan í tjaldútilegu í skaftafelli um verslunarmannahelgi fyrir milljón árum. blóðrásin í tásunum mínum er ekki gerð fyrir kulda. hún hættir bara að virka sem er ekki gott þegar maður er að reyna að sofna. ég veit að það er dýrt að kynda hús í ameríku en fyrr má nú vera. ég er nefnilega ekki heldur með nef sem er gott í kulda og var þ.a.l. með sultardropa twentyfourseven! oj.
ég borðaði hinsvegar ljúffengan mat, enginn kalkúnn en voða gott engu að síður. tók svo upp amerískan sið og fór á útsölur á föstudaginn sem var voða spes. 'black friday' er sumsé einn af útsöludögum ársins en búðirnar opna þann dag klukkan 5 á morgnana! jájá, og þá er liðið búið að bíða í röðum fyrir utan í marga klukkutíma í fimbulkulda. ég fékk að sofa til 8 en var þá dregin á lappir og beint í búðir. believe it or not - þá var allur æsingurinn yfirstaðinn og enginn í búðunum. mjög undarleg þessi úthverfi.
annars eru ritgerðarskil og verkefnaskil og allskonar skil yfirvofandi. og lokaverkefni. gademit. en samt. þegar það allt saman er búið þá er það elsku ísland. saaaaaaaaaaaaaakna íslands og allra.
halli kemur á morgun heim frá íslandi með fangið fullt af íslensku góssi og við ætlum að halda pulsupartý. vonandi verða kókosbollur og lakkrísreimar í desert. spennandi og depressing í bland. spennandi að gæða sér á íslensku gúmmelaði. depressing að það sé eina tilhlökkunarefni næstu daga.
Posted by audur at 01:21 FH | Comments (3793)
nóvember 21, 2006
jólajóla
ég er komin í jólaskap. það er reyndar langt síðan en þar til nú hef ég bara viðurkennt það fyrir nánustu fjölskyldu af augljósum ástæðum. það er ekki alveg eðlilegt að grátbiðja kærastann um að koma og kaupa jólapappír í byrjun nóvember. en ég gerði það samt.
ég er líka búin að skrifa nokkur jólakort og hlusta á jólajóla playlistann minn, kaupa jóladisk og nokkrar jólagjafir. ef ég hefði tök á og hæfileika til þá væri ég búin að baka eitthvað. en ég ætla að leyfa mömmu bara að sjá um það. ég keypti bara smákökur í whole foods. þær eru ágætis substitute og líka ægilega organic og umhverfisvænar eins og allt í whole foods. og voða *hóst* hollar.
svo er thanksgiving í vikunni og allir farnir af manhattan nema ég. ég ætla í turkey dinner til new jersey á morgun. ég hef samt pínu áhyggjur að það verði enginn kalkúnn heldur verði bara pantaður kínverskur eða eitthvað. nefnilega ekki alveg 'the typical all american family' sem er gestgjafinn. reyndar ef ég pæli aðeins betur í því þá jú kannski very typical american, en þá er hún bara ekki eins og þær eru í bíómyndunum. ég vona það besta. mig langar nefnilega rosa mikið í máltíð sem samanstendur af meira en einni tegund. þið vitið, kartöflur og kjöt og grænmeti og sósa og allt þetta helsta. ekki bara ein sort eins og ég er vön og búin að lifa á undanfarna mánuði. súpa. pizza. beygla. osfv.
væri líka til í smá jólasnjó. samt bara eins og í bíómyndunum. enga stórhríð og skafla takk.
Posted by audur at 03:09 FH | Comments (2797)
nóvember 16, 2006
the fabulous life of ...
me.
já. ég var í partýi með pharrell williams takk fyrir. og önnu wintour. og harvey weinstein. og fullt af öðru fólki sem ég veit ekki alveg hvað heitir en það er allt ægilega frægt og flott. hægt að sjá nánar hér og hér.
ég setti líka inn nokkrar myndir úr partýinu.
þessi voru hressir:

en jii þetta partý. louis vuitton kann að halda partý. rautt teppi (ok- það var svart en þið vitið...) með fullt af ljósmyndurum við hurðina. öryggisverðir með talstöðvar og headset og símaskrár með nöfnum þeirra sem var boðið. það tók samt enginn mynd af okkur ara á leiðinni inn. þvílík vonbrigði. ari sagðist hafa séð einn ljósmyndara munda myndavélina en hann hætti við. ó svo sorglegt segja frá þessu. við sem vorum svo sæt og uppábúin. (ok reyndar líka pínu sveitt því við þurftum að bruna í búð til að kaupa skyrtu og jakka á ara á leiðinni ... )
svo var ég svo stressuð. hafði það á tilfinningunni að ég myndi taka eina unni birnu (fljúga á hausinn) eða hrynja niður stigann eða að ég væri með kjólinn girtan ofan í sokkabuxurnar og enginn myndi segja mér frá því. nema hvað, eftir nokkur kampavínsglös þá var mér alveg sama. og farin að leita að pharrell. mig langaði að bjóða honum til íslands og fá eina mynd af okkur saman. kampavínið hafði samt líka þau áhrif að það fór algjörlega framhjá mér þegar hann yfirgaf partýið. súra svekkelsið. en mikið var hann fagur. og hávaxnari en ég hélt.
og anna wintour. - drottning new york og tilvonandi samstarfsmaður minn. umvafin preppy mönnum í navy bláum blazerum með gullhnöppum, khaki buxum og með slifsi. eins og sannri drottningu sæmir. ég þarf að fá mér svoleiðis entourage.
Posted by audur at 10:11 EH | Comments (2800)
nóvember 09, 2006
ohhh svo sætt

búin að drekka slatta af þessu undanfarna daga. mjög gott sko. svo keypti ég 3 kassa í gær. það var tilboð nefnilega. 3 kassar fyrir 8 dollara! 36 dósir fyrir 8 dollara!!! jólakók kemur manni aldeilis í jólaskap. ég hef reyndar ekki getað sofnað fyrr en um 4 - 5 leytið sökum alls koffínsins en það er bara hressandi. maður nær líka betra sambandi við ísland. allir frekar hressir á morgnana á íslandi og hægt að hringja í bankann og útrétta allskyns.
annars er lítið í fréttum. myndavélin er biluð og grimmu gyðingarnir í b&h photo eru sannfærðir að ástæðan sé ill meðferð hjá mér. pfiff. en ég gefst ekki upp. en í bili engar myndir nema þá ef ari tekur einhverjar fabulous myndir sem gera mig svaka sæta meðan hann er í heimsókn. en talandi um... þá fann ég þetta þegar ég var að gúgla ara um daginn:
"Ari Magg
Það kannast líklega allir við Ara Magg. Þeir sem kannast ekki við nafnið hafa þó séð mjög margar myndir sem hann hefur tekið (já sem sagt hann er ljósmyndari) og má þá nefna t.d. myndirnar af keppendum í IDOL, þ.e. myndirnar á plakötunum af keppendum. Hægt er að kíkja á vefsíðuna hans til að skoða dæmi um myndir frá honum en ég var að rekast á myndir sem ég held að hann hafi tekið og mitt álit er að þetta séu flottustu myndirnar sem hann hefur tekið.
Myndirnar fann ég inn á vefsíðunni IAlwaysWantedToBeMissIceland.com en svona miðað við myndirnar á síðunni hennar þá er hún (Auður Karitas) og Ari Magg par, eða allavega mjög oft í heimsókn hjá henni í New York.
Gaman af þessu."
hihi. já aldeilis gaman. takk birgirþór.
Posted by audur at 04:55 EH | Comments (2808)