október 31, 2006

happy halloween

þetta fallega grasker er fyrir utan húsið mitt. ég varð svo glöð að sjá þetta í gærmorgun þegar ég fór út. sambýlisfólkið mitt fær mörg prik fyrir föndrið. perhaps they are human after all...

nema hvað, í fyrra var ég skeggjaður pólskur verkamaður og í ár hafði ég hugsað mér að vera sambrýnd rómönsk húshjálp. ég gleymdi hins vegar alveg að vera praktísk og hætta að plokka þannig að ég verð að leita að propsi til þess að ná tilætluðum árangri. gæti orðið erfitt. hefði líka getað verið praktísk og farið í ricky's (hárvöru- og hárkollubúð sem breytist í halloweenbúð) í tíma. en nei nei, skemmtilegra að þurfa að hafa svolítið fyrir þessu. þetta mission mitt verður svipað og að ætla sér að finna jólapappír í bókabúð á laugaveginum á aðfangadagsmorgun.

annars er allt brjálað í skólanum, hin mjög svo skemmtilegu midterms eru í fullu fjöri. kennarinn minn í humanrights&photography er syndsamlega sjarmerandi þannig að honum fyrirgefst næstum brjálæðisheimavinnan sem hann setur fyrir. hann er pínu líkur christopher reeves heitnum nema sætari, gráhærðari og með rámari rödd. og hann er alltaf með bleikt úr. ég skil það ekki alveg en finnst það geðveikt spennandi. svo safnar hann eldgömlum póstkortum og uppáhalds myndavélin hans er polaroid sx-70. geðveikt rómantískt. ef maður er fyrir svoleiðis.

el cantinero og il cantinori. fyrir dygga sexandthecity aðdáendur þá ættu þessu nöfn að hringja einhverjum bjöllum. ég hef núna sumsé borðað á báðum þessum stöðum. skemmtilega ómerkilegar upplýsingar. nema kannski ef maður hefur gaman að satc. (ok, sko einu sinni átti carrie afmæli og allir ætluðu að hitta hana á voða fínum ítölskum stað - il cantinori - nema enginn kom og stanford hringdi og sagði "did you know there's a mexican restaurant called el cantinero on the corner of ..." þá var hann á vitlausum stað. anyways. hann var ekkert að skrökva, þessir staðir eru báðir til og í svona 3 min. fjarlægð frá hvor öðrum.)
ég ætti kannski að íhuga að byrja með mína eigin satc túra um newyork. og kannski að hætta að horfa á endursýningarnar í sjónvarpinu. and to get a life.

Posted by audur at 04:09 FH | Comments (2797)

október 24, 2006

brrrrr

ég setti upp nýja fína jólatréð mitt í dag. 2 mánuðir til jóla. 2 dagar í ritgerðarskil.

átti unaðslega helgi með elvis. eina sem vantaði var bara kreditkort með ótakmarkaðri heimild og engum gjalddaga. og reyndar kannski aðeins hressari lifur. mín er greinilega í engu formi til að þola smá dag- og kvölddrykkju því ég eyddi hálfum föstudegi á baðinu eftir 3 litla kokteila frá kvöldinu áður. engu að síður fórum við á smá barhopp á laugardagskvöldið. byrjuðum á morimoto í ljúffengum mat að japönskum sið. héldum reyndar að drykkirnir myndum koma úr öllum áttum frá aðdáendum sem við þóttumst vissar um að sætu um okkur en einu drykkirnir sem komu á okkar borð voru þeir sem við höfðum sjálfar pantað og borgað fyrir. ekki laust við örlítið svekkelsi þar. þaðan fórum við á passerby og lit þar sem við skrökvuðum eins og við gátum að öllum þeim sem vildu heyra. ég var til dæmis á tímabili fyrrverandi miss world sem nýlega hafði sofið hjá besta vini fyrrverandi kærasta og brákað fingur við að reyna að skilja að besta vininn og gaurinn sem fyrrverandi kærastinn hafði fengið til að berja vininn í slagsmálum; nokkrum sinnum vorum við fæddar og uppaldar á suðurheimskautinu og drykklanga stund vorum við frá edinborg eftir að glöggir áheyrendur höfðu orð á því hversu hvass og hrjúfur skoski hreimurinn okkar var þrátt fyrir þriggja ára dvöl í new york..... ó þessar elskur. hrjúfa skoskan var íslenska! en allt alveg hreint sérdeilis skemmtilegar og upplífgandi umræður.

en í annað og ekki svo upplífgandi. það er ískalt í new york þessa dagana. alveg þannig að ég held ég haldi mig bara inni þar til í vor.

Posted by audur at 09:38 EH | Comments (2800)

október 18, 2006

(k)rapp

ég horfði aðeins á vh1 hip hop honors í kvöld. fyndið hvað margt hefur breyst. einu sinni komu rappar frá compton, brooklyn og queens og bjuggu í 'the projects'. þeir klæddu sig í hermannaföt, dickies vinnuföt og timberlands skó af því það var ódýrt og endingargott. þeir gerðu svoleiðis föt að margmilljóna trendi meira að segja.
á þessari hátíð var augljóst að gucci og louis vuitton eru nýju dickies og timberlands trendin. menn voru í gucci monogram jakkafötum og joggingöllum. og það voru ekki bara nýju celebreality rappararnir sem voru typpalegir heldur líka gamlir jálkar eins og rza, talib kweli og the roots.
svekkjandi.

lil' kim laus úr fangelsi. 'smá' óverdós af botoxi í gangi. elska gallann samt.


beastie boys eru alvöru með öllum sínum krumpum og gráu hárum.


held að salt'n'pepa séu bara pínu sætari í dag en í gamla daga. pínu tranny ennþá auðvitað..(lengst til vinstri)


rza representing gucci


coco, eiginkona ice-t. svona líka ljómandi fögur.


erykah ó erykah.


xzibit og ég. who wears it better?

modell's rúlar.

Posted by audur at 12:52 FH | Comments (2800)

október 11, 2006

þetta helst

litla systir og kærastinn hennar eru í heimsókn.
þau vakna mjööög snemma á morgnana og fara út og ég færi mig yfir í rúmið og held áfram að sofa. mjög hentugt. nema kannski helst til lítið fútt í þeim á kvöldin. þau sofna nefnilega á svipuðum tíma og ungabörnin í new york eða í kringum níuleytið. dúllur. þessa stundina er reyndar svosum lítið fútt í mér þar sem ég er búin að belgja mig út af öllum lakkrísnum og drakúlabrjóstsykrinum sem þau færðu mér. ó svo gott.

ég fór og fylgdist með vinkonu minni í barnes&noble í gærkvöldi. hún fór næstum að gráta nokkrum sinnum og ég meira að segja líka þegar hún var að segja frá nýjustu bókinni sinni. hún er snillingur og kærastan hennar var það líka.
ég beið svo í laaangri röð eftir þessu

bara fyrir ara.

Posted by audur at 11:39 EH | Comments (2794)

október 08, 2006

10.08

ég á útlenskt afmæli í dag.
jeeeeiiiii.

Posted by audur at 03:39 FH | Comments (2800)

október 06, 2006

vandræði

eða vandræðalegt öllu heldur. ég flutti fyrirlesturinn minn í kvöld og gekk bara nokkuð vel. umræðuefnið til þess fallið að hægt er að tala um það endalaust. og allir með sínar sögur, sínar uppáhalds stríðsljósmyndir til að segja frá, ladida ladida. flestir hérna megin atlantshafsins virðast geta talað endalaust um sjálfan sig. allt mjög gott. vandræðin byrjuðu samt strax í upphafi tímans. prófessorinn var nefnilega alveg með það á hreinu að ég héti kashja... 'kashja - are you ready to start?' kashja????? og alveg í 3 klukkutíma svaraði ég því nafni. oj svo neyðarlegt. ekki að ég skilji ekki að það getur verið erfitt að bera fram nafnið a*uður k*aritas á*sgeirsdóttir en hvaðan fékk hann kashja? hann hringdi tvisvar í vikunni í mig til þess að athuga hvernig gengi með fyrirlesturinn og svoleiðis... ég rétt missti af símanum þegar hann hringdi í bæði skiptin og hringdi tilbaka og kynnti mig í upphafi hátt og skýrt. OG í síðustu viku spurði hann mig sérstaklega hvernig ég bæri nafnið mitt fram og ég kenndi honum það, staf fyrir staf, hljóð fyrir hljóð. og ég er ekki einu sinni að tala um auðarnafnið, -ég geri mér grein fyrir að that would be pushing it.

svo er alltaf hressandi þegar ég er spurð um 'your last name please?' já einmitt, ásgeirsdóttir! nokkrum endurtekningum síðar: ei-ess-djí (smá pása)... í-æ-ahr... ess-dí-ó.... tí-tí-æ-ahr. breytir samt ekki miklu, flestir skilja mann ekkert betur þó maður stafi ofan í þá en í bandaríkjunum eru rúmlega 10 milljónir manna ólæsir! ('out of 105 Third World, developing nations for which UNESCO provided statistics in 1995, only 9 have a greater absolute number of illiterate adults than the United States')
national geographic kannaði landafræðikunnáttu nokkurra þjóða árið 2002 og komst að því að einungis 17% ungs fólks ('young adults') í bandaríkjunum gat staðsett afghanistan á korti.(þátttakendur voru frá kanada, frakklandi, þýskalandi, bretlandi, ítalíu, svíþjóð, japan, mexíkó og bandaríkjunum. svíarnir skoruðu hæst, mexíkóarnir lægst og bandaríkjamennirnir næstlægst). í new york times fyrir nokkrum dögum kom það fram að 25% bandaríkjamanna vissu ekki um hvað verið var að tala þegar það heyrði talað um abu graib. svona er ástandið í heimsveldinu í dag. uppörvandi.

Posted by audur at 12:05 FH | Comments (2795)

október 04, 2006

hann á afmæli í dag

pínu krumpuð mynd en hún er líka orðin gömul. næstum jafngömul og ég.
til hamingju með daginn daddy dearest. skál í botn.

Posted by audur at 01:24 FH | Comments (2797)

október 03, 2006

fallegt?




hröð efnaskipti my ass.

Posted by audur at 01:51 FH | Comments (2800)

október 02, 2006

afsakið hlé

ok ég er búin að vera svaka upptekin að kela en héðan í frá og næstu 4 vikur verð ég mjög einbeitt í skrifunum. það sem er helst í fréttum er að óprúttnir thailendingar stálu kreditkortinu mínu mér og visa til ómældrar ánægju. vonandi keyptu þeir sér eitthvað fallegt.
íslenski strákurinn hætti sumsé í tímanum mínum og danielle, vinsælasta stelpan í bekknum, var rekin. allt hið besta mál.
í næsta tíma þarf ég að vera með 40min langan fyrirlestur um 'war photography', vera með class project, sýna myndband og allskonar vesen. ef það fer til helvítis og ég næ ekki að lesa allar 9 bækurnar sem þarf að lesa fyrir tímann þá gæti ég unnið mér inn stig með því að plana ultimate strákaferð til ísland. prófessorinn sagði mér nefnilega að hann langaði að bonda með 17 ára syni sínum og bjóða honum í langa helgarferð til íslands í vetur. alltaf gott að hafa plan b.
við sáum 2 frábærar myndir í bíó í vikunni, 'little miss sunshine' og 'the science of sleep'. mjög ólíkar en báðar æði. svo horfðum við á fullt af skemmtilegum sjónvarpsþáttum en ég er sumsé, þökk sé halla litla, farin að taka þátt í stuldi á sjónvarpsefni á netinu. takk halli. í alvöru. svo borðuðum við mikið af góðum mat með góðu fólki. held ég ætli að bjóða fjölskyldunni á 'del posto' þegar ég verð orðin meistari í vor. jii það var best í heimi. besti bellini-inn, besti maturinn og beeeesti þjónninn.
næst á dagskrá er arna systir og hennar kæró en þau koma í heimsókn eftir viku. skókassinn á 21.stræti verður undirlagður af nýjum fötum og plötum ef ég þekki þau rétt. vonandi verður heita vatnið komið í lag...

Posted by audur at 12:04 FH | Comments (2795)