september 15, 2006
obbosí
íslenski strákurinn mætti ekki í dag. kannski leist honum jafn illa á að hafa samlanda sinn í bekknum og mér og skipti um tíma... reyndar mætti ekki nema rétt rúmlega helmingur þeirra sem eru skráðir í kúrsinn en kennarinn er mjöög ákafur og lesefni fyrir hvern tíma er á við góða símaskrá. því miður mætti hins vegar danielle. hún er sjálf kennari við parsons og með allskonar gráður í tísku og ég veit ekki hvað og hvað. hún er óþolandi en kannski þarf alltaf einhver að taka það að sér að vera óþolandi týpan í tímum, það hlýtur eiginlega bara að vera. hún byrjaði á því í dag að kvarta undan því að það þyrfti að kaupa níu skólabækur og eitt mjög stórt og þykkt (og dýrt) ljósritað hefti fyrir tímann. svolítið spes þar sem hún er jú prófessor við skólann og hlýtur að hafa einhverjar tekjur af því ólíkt flest öllum öðru í bekknum. ok fyrirgefið, ég veit reyndar til þess að ein stelpa í bekknum sé vinna sem lærlingur og fær 15 dollara í lok hvers dags og ókeypis lestarkort. en kennarinn fékk smá móral og ákvað að setja bækurnar á "reserve" á bókasafninu þannig að fólk gæti ekki fengið þær til útláns heldur væru þær til taks fyrir alla til lestrar á opnunartíma bókasafnsins. hún varð voða hress með það og sagðist þá ætla að fá þær allar lánaðar því hún hefði heimild til þess að fá bækur heim þó þær væru fráteknar þar sem hún væri kennari við skólann!! steik. hún er týpan með óþolandi spurningar sem koma umræðuefni bekkjarins ekkert við og er með kjaft við kennarann þegar hann biður hana að bíða með spurningar þar til hann hefur lokið máli sínu. ég er að hugsa um að henda henni út um gluggann í næsta tíma ef hún heldur áfram að vera óþolandi. það yrði nefnilega lítið mál, hún er svona 25 kg nefnilega og situr alltaf ein alveg við gluggann. sennileg verður samt einhver annar búinn að því á undan mér því svo virðist sem það séu fleiri en ég sem hafi ekki smekk fyrir hennar athugasemdum. þetta tískupakk. allt alveg snar ;)
eftir tíma hitti ég einar og söbbu á otto. alltaf gott að koma þangað. ég fékk mér gómsætan blood apple cosmo með reyka vodka í forrétt. greinilegt að ráðning önnu r*akelar og fleiri sykursætra íslenskra módela sem formælanda fyrir reyka vodka hefur margborgað sig. áfram reyka.
Posted by audur at 15.09.06 00:17
Comments
my oh my. hlakka til að koma. mæli með því að þú drepir píuna bara með augunum, virkar ágætlega á taugarnar.....love love love
Posted by: arnan litla at 15.09.06 10:10
Bara segja við hana vel valin orð á íslensku með góðum norðlenskum hreim. Notar svo aðferð systur þinnar í leiðinni.. hehehe..
Knús og kossar
Posted by: Þórný at 15.09.06 10:59
ooo já, það þarf ALLTAF að vera ein svona týpa með manni í bekk, ég hélt að ég væri sloppin með því að vera að taka nýjasta skólann minn í fjarnámi, en neeeeiiii,þá eru bara sumir að nota net-umræðuþræðina í spjall og spurningar um mataruppskriftir og slúður og eitthvað, óþolandi!
Posted by: kamilla at 17.09.06 16:27