september 28, 2006
af hverju
ég ætla ekki að vera með pistil um pólitík (langar það samt smá) en ég ætla að láta það duga að segja hversu reið ég er í dag. og sorgmædd.
Posted by audur at 11:58 FH | Comments (2793)
september 18, 2006
og já
nokkrar nýjar myndir....
Posted by audur at 04:48 FH | Comments (2797)
íslandskílóin
ég fór í ræktina í gær loksins. það er eitthvað við ísland sem límir extra lög af óþarfa fóðri við mann í hvert sinn sem maður kemur í heimsókn. bæjarins bestu eru góðar. ég borða samt ekki pylsur, tæknilega séð. krua thai og eldsmiðjan, mjög gott. bragðarefur og kókosbollur, mjööög gott. þetta og allskonar annað gómsætt gúmmelaði plús akstur hvert sem maður fer, samasem bumba og undirhaka, samasem mega bömmer.
to make things even worse þá verð ég að ganga með gleraugu þessa dagana. hér er allt frekar hreyfihamlað þegar kemur að eiginlega öllu bara en nánar tiltekið þá er ekki hægt að kaupa linsur nema að vera með uppáskrifað frá lækni allar helstu upplýsingar. hinsvegar er boðið upp á skoðun og það kostar $$$ að sjálfsögðu. mjög ósmart að vera sveittur í ræktinni með gleraugu sem voru smart fyrir 5 árum. og er alveg vonlaust að geta ekki verið með sólgleraugu OG séð hvert maður er að fara. þessa dagana er það annað hvort að blindast í sólinni eða að ganga eftir minni. hvorutveggja slæmir kostir, búin að prufa bæði.
Posted by audur at 12:50 FH | Comments (2798)
september 15, 2006
obbosí
íslenski strákurinn mætti ekki í dag. kannski leist honum jafn illa á að hafa samlanda sinn í bekknum og mér og skipti um tíma... reyndar mætti ekki nema rétt rúmlega helmingur þeirra sem eru skráðir í kúrsinn en kennarinn er mjöög ákafur og lesefni fyrir hvern tíma er á við góða símaskrá. því miður mætti hins vegar danielle. hún er sjálf kennari við parsons og með allskonar gráður í tísku og ég veit ekki hvað og hvað. hún er óþolandi en kannski þarf alltaf einhver að taka það að sér að vera óþolandi týpan í tímum, það hlýtur eiginlega bara að vera. hún byrjaði á því í dag að kvarta undan því að það þyrfti að kaupa níu skólabækur og eitt mjög stórt og þykkt (og dýrt) ljósritað hefti fyrir tímann. svolítið spes þar sem hún er jú prófessor við skólann og hlýtur að hafa einhverjar tekjur af því ólíkt flest öllum öðru í bekknum. ok fyrirgefið, ég veit reyndar til þess að ein stelpa í bekknum sé vinna sem lærlingur og fær 15 dollara í lok hvers dags og ókeypis lestarkort. en kennarinn fékk smá móral og ákvað að setja bækurnar á "reserve" á bókasafninu þannig að fólk gæti ekki fengið þær til útláns heldur væru þær til taks fyrir alla til lestrar á opnunartíma bókasafnsins. hún varð voða hress með það og sagðist þá ætla að fá þær allar lánaðar því hún hefði heimild til þess að fá bækur heim þó þær væru fráteknar þar sem hún væri kennari við skólann!! steik. hún er týpan með óþolandi spurningar sem koma umræðuefni bekkjarins ekkert við og er með kjaft við kennarann þegar hann biður hana að bíða með spurningar þar til hann hefur lokið máli sínu. ég er að hugsa um að henda henni út um gluggann í næsta tíma ef hún heldur áfram að vera óþolandi. það yrði nefnilega lítið mál, hún er svona 25 kg nefnilega og situr alltaf ein alveg við gluggann. sennileg verður samt einhver annar búinn að því á undan mér því svo virðist sem það séu fleiri en ég sem hafi ekki smekk fyrir hennar athugasemdum. þetta tískupakk. allt alveg snar ;)
eftir tíma hitti ég einar og söbbu á otto. alltaf gott að koma þangað. ég fékk mér gómsætan blood apple cosmo með reyka vodka í forrétt. greinilegt að ráðning önnu r*akelar og fleiri sykursætra íslenskra módela sem formælanda fyrir reyka vodka hefur margborgað sig. áfram reyka.
Posted by audur at 12:17 FH | Comments (2795)
september 13, 2006
newyork newyork
vinsælasta spurningin í sumar var "hvenær ferðu?" mér til armæðu og undrunar. ég var nýkomin og strax verið að spyrja hvenær ég myndi fara aftur. ég er að reyna að sannfæra mig um að þetta hafi bara verið small talk. það er næstum að takast :) en ég er sumsé farin svo það sé opinbert.
skólinn er byrjaður og amazon kemur svona þrisvar á dag með skólabækur til mín. þeir passa sig að koma bara með eina í einu svo þeir hjá ups hafi eitthvað að gera. elskulegt af þeim.
ég var í tíma í síðustu viku og komst að því mér til undrunar og smá armæðu að það er íslenskur strákur með mér í bekk. ok ekki kannski armæðu en allavega undrunar og pínu óþæginda. mér finnst ég eitthvað exposed. og ekki nóg með það að það séu tveir íslendingar í 25 manna bekk þá er ein norsk pía sem er beinlínis það sama. og þetta er í annað skiptið hjá þessum prófessor sem hann hefur haft tvo nemendur frá íslandi í sama bekk. jáb lítill heimur og stórt ísland.
ég er ekki í almennilegu bloggformi en ég ætla að reyna að vera ýkt dugleg að segja einhverjar safaríkar sögur úr stórborginni sérstaklega ef það kemur í ljós að það eru ennþá einhverjir sem lesa þetta...
ást
Posted by audur at 10:53 EH | Comments (2798)