júní 08, 2006
já
ég vil byrja á því að afsaka bloggleysið en valkvíði hefur hrjáð mig undanfarið hvort ég ætti yfirhöfuð að blogga þegar ég er stödd á íslandi. enn hef ég ekki getað tekið ákvörðun en eins og sést hefur þá hefur lítið gerst hér síðan 5. maí.
skemmst er hins vegar frá því að segja að skólinn gekk alveg hreint prýðilega. heimkoman einnig en arna sys var send í skyndi frá íslandi til þess að aðstoða við flutning á fatnaði og skóm undirritaðrar til landsins. engu að síður varð að greiða fyrir nokkur aukakíló. heilir 30 dollarar takk fyrir, meira var það nú ekki.
núna þykist ég vera voða klár og sniðug í vinnunni minni og enn sem komið er gengur það nokkuð vel bara. sakna pínu sólarinnar og sumarveðursins í newyork en sunnudagsmaturinn hjá mömmu og kúr í óþægilega sófanum hans ara míns bætir upp fyrir rigninguna og sólarleysið.
svo ef einhvern sem þetta les langar í sólarfrí þá minni ég á íbúðina mína sem stendur auð og einmana á besta stað á manhattan...
Posted by audur at 07:44 FH | Comments (2792)