maí 05, 2006

hvíti víkingurinn

þessa dagana geri ég lítið annað en að sitja fyrir framan tölvuna. vona heitt og innilega að hún gefi ekki upp öndina eins og ýmislegt bendir til að sé að gerast. svo hlusta ég á sjónvarpið. í gær þá heyrði ég tvisvar íslensku í útlenska sjónvarpinu mínu, mér til ómældrar ánægju og undrunar. fyrst þá voru það vísur vatnsenda-rósu sem hljómuðu í flutningi bjarkar undir einhverri forvarnarauglýsingu í boði ford! kom mér nokkuð á óvart svo ekki sé meira sagt. nokkrum tímum síðar þá heyri ég karlmannsrödd tala íslensku. þá var það þáttur um íslenska smábátasjómenn og sjóslys við strendur íslands. þarna komst ég að ýmsu um strand svanborgar og víkartinds sem ég hafði ekki hugmynd um (eða var búin að gleyma) í amerískum þætti á kapalnum um miðjan nótt. allskonar 'viska' sem leynist á þessum kapli; stöð 97 er 'the prayer channel', 112 er 'the military channel', 121 golf stöð og 72 er veðurstöðin. ó já, heilar sjónvarpsstöðvar helgaðar þessum efnum.

ég fékk eitt undarlegasta proposistion ævi minnar fyrir nokkrum dögum. maður sem hangir ýmist á 3. breiðgötu (í mínu hverfi) eða á 6. breiðgötu við 14.stræti (við skólann minn) og betlar pening bauð mér á stefnumót. þessi maður er sérstakur fyrir margar sakir. í fyrsta lagi þá er hann alltaf í öllu hvítu. ég hélt að hann væri e.t.v santeria trúar en svo hef aldrei séð neinn sem aðhyllist þau trúarbrögð vera í hvítum buffaloskóm né með hvíta síða hárköllu bundna í fléttu, með hvítan maskara eða skíðavaralit upp á hvern einasta dag. nema hvað, hann sumsé vindur sér upp að mér einn daginn þegar ég er að koma úr tíma og spyr hvað ég heiti. ég þóttist ekkert heyra og hélt áfram göngunni. þegar hann var búinn að labba með mér tvær blokkir þá spurði hann hvort ég vildi hitta sig í kaffi. ég svaraði að ég drykki ekki kaffi. þá stakk hann upp á drykk, sem ég neitaði líka. það var ekki fyrr en ég sagðist myndi hugsa málið um deit að hann snéri við og tók aftur við að belta klink af vegfarendum. spurning hvort hann sé núna að safna fyrir drykk handa mér...

Posted by audur at 03:38 FH | Comments (2796)

maí 02, 2006

neimdropp

það er offisíalt. mercer hótelið er kjörinn staður til að sjá fræga fólkið. ég, mamma og ari hittum jóa og rakel í drykk (drykkiii er nær sannleikanum) í lobbýinu á mercer á laugardaginn. þar sáum við bill murray, jeff goldblum, kelly lynch, mario testino og alexander mcqueen. jebb. þar að auki voru jói og rakel búin að spotta kate moss með dóttur sinni og hina fögru jessicu alba á hótelinu. já þá vitið þið það.

annars var síðasta vika ansi hreint góð. þessi verður ekki alveg jafn skemmtileg. meira svona hálf dösuð í samanburði. ritgerðir og verkefni komin á síðasta sjéns nefnilega.

nokkrar nýjar myndir

gleðilegan maí

og ef ykkur vantar litla íbúð á besta stað á manhattan í sumar ...

Posted by audur at 12:16 FH | Comments (2792)