apríl 27, 2006
super mario
mamma er í heimsókn. mömmur eru mjög vel heppnað fyrirbæri. mér finnst ég líka ofsalega heppin með eintak. þetta er í annað skiptið sem hún kemur eftir að ég flutti þannig að núna er bara afslöppun. ekkert stress að kaupa ipoda fyrir milljón manns, nærföt, sokka, plötuspilaranálar og god knows what. bara borða, drekka og vera glaðar. ansi gott.
við eyddum morgninum í gamla hverfinu okkar í queens. löbbuðum að húsinu sem við áttum heima í og reyndum að sjá hvort einhverjir af nágrönnunum væru enn búsettir á sama stað. svo virtist ekki vera en mömmu sýndist húsið sjálft ekki hafa breyst mikið þó hverfið væri búið að taka þónokkrum breytingum. ég reyndi að muna eftir einhverju en mundi ekkert. helst fannst mér húsin minni en mig minnti. en ég held ég muni reyndar bara hvernig húsin líta út á gömlu myndunum.
í kvöld fórum við svo út að borða á babbo. dýrindis matur og frábært kvöld. við pöntuðum allt of mikinn mat og gátum rétt nartað í síðasta réttinn. svo höfðum við áhyggjur því við vildum ekki að starfsfólkið héldi að okkur hefði ekki þótt maturinn góður. jájá, gáfuleg eyðsla á orku. anyways, babbo var stjörnuprýddur þetta kvöld sem önnur en bono heiðraði staðinn með nærveru sinni þetta skiptið. hann er minni en ég hélt. ég sendi ara sms með tíðindunum og fékk tilbaka leyfi til að kyssa hann ef ég vildi. ég ákvað að geyma leyfið til betri tíma. fyrir utan babbo sat svo feiti, rauðhærði eigandinn og meistarakokkurinn sjálfur, mario batali og reykti vindil og drakk rauðvín með einhverri míkróstjörnu. ég fór til hans og bað eins kurteisis- (og dömu)lega og ég mögulegast gat hvort hann vildi vera svo elskulegur og árita matreiðslubókina sem ég hafði keypt handa móður minni. það var ekkert sjálfsagðra og skrifaði hann eitthvað sem hvorug okkar skilur. jei. hvað sem því líður þá þykjumst við sjá 'anna, with love + linguini, mario batali' þar að auki var hann alveg harður á því að mamma væri ekki mamma mín heldur systir. ítölsku daðurgenin í fullu fjöri. en hann var sjarmerandi... in a food kind of way.
Posted by audur at 12:54 FH | Comments (2792)
apríl 23, 2006
mæ mæ mæ miami
ó mæ. miami var dásamleg.
við yfirgáfum new york rúmlega sex um morgun og settumst upp í leðurklædda lággjaldaflugvél. spes, já veit, en jetblue er sniðugt. sjónvarp með 36 stöðvum í hverju sæti meira að segja. allt mjög gott fyrir utan kannski hristinginn. hann var svo mikill á tímabili að flugfreyjunum var skipað að sitja og maðurinn hinumeginn við ganginn ríghélt sér í sætið þannig að hendurnar hans voru hvítar sökum blóðleysis. sjálf hélt ég á ælupokanum mestan part af leiðinni.
fyi þá elska ég hótel. og mandarin hótelið er æðislegt. við plöntuðum okkur við sundlaugarbakkann, sötruðum frosna mangókokteila, borðuðum sushi og grilluðumst. merkilegt hvað maður getur aldrei baðað sig nóg í sólarvörn. íslendingar hljóta að þekkjast alltaf í mílufjarlægð, hvítir eða rauðglansandi og pínu krumpaðir. hins vegar sá ég engan miami-búa með bumbu. mínar bumbur voru á hinn bóginn all too visible og af þeim sökum eru engar bikinímyndir.
á föstudagskvöldinu var okkur boðið á nba-leik, miami heat á móti philadelphia 76ers. felicia snillingur sá til þess að það var stjanað við okkur og áður en fyrsti leikhluti var hálfnaður vorum við komin í bestu sæti hússins. courtside beibí. við sátum á milli dómaraborðsins og varamannabekksins. bossarnir á leikmönnunum voru í metersfjarlægð takk fyrir. og allen iverson. what can i say. maðurinn er svo fallegur og flinkur að það er ómennskt. ég reyndi að fara leynt með það, verandi á heimavelli miami og nánast við hliðina á pat riley (þjálfara miami), en ég hélt með allen. ó allen.
laugardeginum eyddum við í búðum þar sem ég hafði (og fleiri reyndar) grillast allverulega á hinum undarlegustu stöðum eftir sundlaugarbakkaleguna. dásamlegur dagur með allskonar óvæntum fréttum og ófyrirsjáanlegum athöfnum.
á páskadag lágum við á ströndinni. mjög huggulegt. mennirnir fengu útrás fyrir testósterónið og fóru á jet-ski á meðan dömurnar lásu slúðurblöð og sóluðu sig. voða domestic eitthvað.
annan í páskum fórum við ari og erna í týpískt amerískt moll á meðan bransakallinn sinnti bissnessnum. þótt undarlegt megi virðast þá var það karlmaðurinn í hópnum sem keypti mest. allt voða mikil reyfarakaup og var hann hæstánægður með árangur dagsins. erna gaf honum prik fyrir þolinmæði og einlægan áhuga á verslunarferðum. duglegur hann ari.
síðasta dásemdardeginum eyddum við í kokteila-og-sushi-marineringu við sundlaugarbakkann. mæli með því. og mæli með miami. og sól og strönd og sushi og frosnum mangókokteilum. mest eiginlega samt mandarin oriental hótelinu. ó boj.
Posted by audur at 10:53 EH | Comments (2792)
apríl 12, 2006
ææi
ég er haldin ritgerðarstíflu. ekki gott. ritgerðarefnið er samt skemmtilegt. ég skil þetta ekki alveg. svo eru bara 5 vikur eftir af skólanum. eftir nokkrar vikur verð ég hálfnuð með námið mitt. skil það ekki alveg heldur. mér finnst ég nýkomin.
á mánudaginn var ég að skila hópverkefni í digital design kúrsi. í fyrsta lagi eru hópverkefni alltaf nett guðsvoluð. maður lendir alltaf í hópi með einhverjum drottningum og pottþétt með þeim sem from day one fóru eitthvað í taugarnar á manni. og þetta verkefni. óhh boj. goddur hefði potað úr sér augun hefði hann séð sumt af þessu. en það er búið sem betur fer og framundan er einstaklingsverkefni eftir eigin höfði. ó já, ég má ákveða sjálf hvað ég geri. pretty nice. svo skilaði ég ritgerð í kárahnjúkaverkefninu mínu í gær, mjög skemmtilegt og ég er orðin extreme anti-stóriðjusinni. (allir að muna að taka 21.júlí frá)
um helgina voru nokkur mis-skemmtileg partý heimsótt. reyndar voru þau öll alveg skemmtileg, hvert á sinn hátt bara. hitti skemmtilega íslendinga og ég held að það hafi verið ákveðið að endurlífga íslendingafélagið í newyork. pulsupartý, möndluát og fimbulfamb spilerí er á dagskránni.
á sunnudaginn var æðislegt veður og ég ákvað að fara í göngutúr um chinatown. mér tekst alltaf að gleyma hvað kínahverfið er undarlegt en um leið merkilegt. ég var að labba á mott street en þar eru margir litlir fiskmarkaðir og fullt af fólki að kaupa sér allskonar mis-geðslega sjávarávexti. nema hvað, ég er að labba þarna í gegnum slorið (á aðeins of fínum skóm fyrir svoleiðis reyndar) og uppúr einu fiskkarinu skoppar skyndilega sprelllifandi áll. mér brá skiljanlega ansi mikið en fannst þetta samt eitthvað skemmtilegt. þarna synti állinn í smá bleytu á gangstéttinni en komst hvergi. á örfáum sekúndum hafði svo safnast fjöldinn allur af fólki sem stóð bara stjarft og starði á álinn þar til honum var hent aftur í karið sitt af skapvondum sölumanni. það var eitthvað sorglegt við baráttuna hans þrátt fyrir að um leið væri þetta allt frekar ógeðslegt. chinatown er hvorki þrifalegasti né best lyktandi staðurinn í newyork nefnilega. en þetta var mjög eftirminnilegt newyork móment engu að síður.
á morgun þarf ég í skólann, ekkert páskafrí hér eins og ég hef röflað um áður en..... á hinn er það miami. ó já. sól og sæla, kokteilar og .... well, allskonar skemmtilegt bara. gleðilega páska everyone.
Posted by audur at 06:37 EH | Comments (2792)
apríl 07, 2006
attention shoppers!
nýjar myndir.
Posted by audur at 03:44 EH | Comments (2792)
apríl 06, 2006
hefndaraðgerðir
ég ákvað á miðnætti að byrja á vorhreingerningunni. ég tók 'allt' úr eldhússkápunum, þreif og endurraðaði, vaskaði upp með látum og skúraði gólf, endurskipulagði fataskápinn minn og skipti á rúminu, skrúbbaði baðkarið með partýtónlist og sjónvarpið í gangi. allt þetta gerði ég í hefndarskyni við nágrannann minn. hún tók nefnilega upp á því að steikja beikon í 2 tíma í dag, annan daginn í röð, sem gerði það að verkum að fataskápurinn minn er mjög mengaður og allt inni í honum lyktar eins og breskur morgunmatur. ógéééð.
svo af því ég er alltaf að læra meira og meira á þetta blogg mitt, þá ákvað ég að hreinsa aðeins til og henda burt allskonar spami úr kommentakerfinu. við það sannfærðist ég um að þeir sem standa á bakvið spam hafi sjötta skilningsvitið því ólíkt því sem ég átti von á (gylliboðum um typpastækkanir og viagra á tilboðsverði) þá voru þetta milljón tilkynningar um kreditkort á mínu nafni sem biðu bara eftir að verða sótt. úff veikur blettur.
Posted by audur at 02:02 FH | Comments (2792)
apríl 05, 2006
auðursauður
í stað þess að skrifa hér hvað ég hef verið að vesenast undanfarna daga þá bendi ég lesendum mínum á að lesa bloggið hans haraldar vinar míns. þessi málglaði en jafnframt ó svo sniðugi strákur er búinn skrifa greinargóða lýsingu á helstu viðburðum lífs síns síðustu daga og það kemur sér vel í þessu tilfelli því svo vill til að þeir eru hinir sömu og hafa átt sér stað í mínu lífi. eða því sem næst.
*** (R)
ég fattaði fyrst fyrir nokkrum dögum að hægt væri að skilja eftir komment við myndirnar hérna á síðunni. ég vil því nota tækifærið og þakka lesendum mínum fyrir falleg orð og þá sérstaklega gb@whitehouse.org. it means a lot. really.
þegar ég var svo að fara í gegnum þessar myndir þá tók ég líka eftir því að sumar myndanna höfðu verið skoðaðar oftar en hundrað sinnum. hundrað!!! ég hélt að það væru kannski 15-20 manns sem læsu vælið í mér. í mesta lagi. opinberið ykkur elsku vinir. ég er óbærilega forvitin.
Posted by audur at 02:46 FH | Comments (2792)
apríl 02, 2006
tímaþjófur
klukkunni var breytt í nótt. kom heim klukkan hálf fjögur í nótt og hélt að klukkan væri bara hálf þrjú. pínu bömmer. en líka gott, það munar eitthvað svo miklu um þennan klukkutíma þegar maður ætlar að ná sambandi við eylandið ísland.
sá einhver annars sirkus á föstudaginn? ég var 'útlaginn'. how was it? einhver sagði við mig á msn þegar ég var fjarverandi að þetta hefði verið 'rosa töff og trendý'. ég er ekki viss hvort þetta var sagt í kaldhæðni eða hvað... en ef einhver hefur áhuga á fleiri sögum from an icelandic shopaholic fashion girl in new york þá er ég til.... i kinda need a job you see. note to self though: slaka aðeins á í enskuslettunum.
hvað um það, sumarið er komið, sól og sæla, hiti, hotpants og heitur vindur. ansi ljúft verður að viðurkennast.
svo eru páskarnir framundan nema hér er ekkert frí. hér, í god-bless-america, þykir krossfesting og upprisa jesú greinilega ekkert merkileg. ástæðan gæti reyndar verið sú að það eru svo margir frídagar tengdir jewish holidays að kvótinn er búinn þegar kemur að páskum.
svo langar mig í páskaegg. ég fékk eitt í pulsupartýinu hennar brynju skíðaskvísu og þennan málshátt: 'illt er þeim sem ólund ber'. so true. nói siríus er sniðugur að halda sig við klassíkina. ég fékk í fortune cookie sem fylgdi kvöldmatnum; 'you like participating in competitive sports'. mikil viska þar á ferð. eða eitthvað.
Posted by audur at 03:04 EH | Comments (2792)