apríl 05, 2006

auðursauður

í stað þess að skrifa hér hvað ég hef verið að vesenast undanfarna daga þá bendi ég lesendum mínum á að lesa bloggið hans haraldar vinar míns. þessi málglaði en jafnframt ó svo sniðugi strákur er búinn skrifa greinargóða lýsingu á helstu viðburðum lífs síns síðustu daga og það kemur sér vel í þessu tilfelli því svo vill til að þeir eru hinir sömu og hafa átt sér stað í mínu lífi. eða því sem næst.

*** (R)
ég fattaði fyrst fyrir nokkrum dögum að hægt væri að skilja eftir komment við myndirnar hérna á síðunni. ég vil því nota tækifærið og þakka lesendum mínum fyrir falleg orð og þá sérstaklega gb@whitehouse.org. it means a lot. really.
þegar ég var svo að fara í gegnum þessar myndir þá tók ég líka eftir því að sumar myndanna höfðu verið skoðaðar oftar en hundrað sinnum. hundrað!!! ég hélt að það væru kannski 15-20 manns sem læsu vælið í mér. í mesta lagi. opinberið ykkur elsku vinir. ég er óbærilega forvitin.

Posted by audur at 05.04.06 02:46

Comments

Opinberun Írisar...

Posted by: Íris at 05.04.06 06:35

He he, (R).

Posted by: Halli at 05.04.06 11:21

ég held að ég sé löngu opinberuð hjá þér mín kæra. en sumar myndirnar hef ég reyndar skoðað nokkrum sinnum. svo að ... best að fara að kommenta núna á þær ...

Posted by: Elva Dögg at 05.04.06 15:30

ég kem daglega í heimsókn :)

Posted by: Guðrún Ragna at 05.04.06 19:53

:D

Posted by: auðurkaritas at 06.04.06 02:48

Hæ hó ég bloggrónast stundum hjá þér og les sögur úr stórborginni. Hef haft gaman og verð þess vegna að láta vita af lestrinum þegar þess er óskað:-)

Posted by: Simmi at 08.04.06 12:38