mars 28, 2006
ekkert fyllerí á bikiníi í þetta skiptið
sæl veriði. þá er ég búin að fara til íslands í spring break og komin aftur heim til ny. litla fjölskyldan er farin og allt orðið venjulegt aftur. ritgerðaskil meira að segja og svoleiðis súrindi framundan. á íslandi var haldið var upp á tvöfalt ljósmyndaraafmæli með megapartýi á arabar. ég ætlaði að taka fullt af myndum en setti myndavélina frá mér á einhverjum tímapunkti og fann hana ekkert fyrr en nokkrum dögum síðar. sem betur fer hafði einhver góðhjartaður veislugestur tekið myndavélina að sér og smellt nokkrum sinnum af. bestu þakkir kæri leyniljósmyndari.
ég fór í leikhús á broadway á föstudaginn með mínum kæru frænkum og sá the color purple - the musical!! hljómar kannski undarlega en það var æði. ég hef aldrei séð jafn margar fínar afrísk-amerískar frúr á einum stað. og eins þeirra er siður þá voru þær mjög líflegar og mjög virkir þátttakendur í sýningunni. mjög heimilislegt og einlægt eitthvað. svo túristaðist ég svolítið með litlu fjölskyldunni um helgina, fór upp í empire state og í american museum of natural history og sá geimsýninguna þar meðal annars. það var frábært. (friends aðdáendur muna kannski eftir þætti með ross og rachel og djúsfernu og keleríi í safni... well geimsýningin er þar og hún er æði)
en já, íslandsheimsóknin var góð en stutt og ég náði bara að gera helminginn af því sem var á dagskránni. hinsvegar þá er ég búin að ákveða að vera heima á íslandi í sumar og þá verða kojufyllerí og kaffihúsahangs alla daga. sjáumst þá.
Posted by audur at 01:14 EH | Comments (2990)
mars 13, 2006
sæludagur
ég fór í brunch á snilldarstað í gær. fyrir 12 dollara var hægt að velja á milli 20 mismunandi rétta, frá omelettum og eggs benedict til turkey burger og sesar salats. til viðbótar var hægt að velja á milli kampavíns, mimosa, screwdriver og bloody mary með í já! ótakmörkuðu magni. vildi maður hinsvegar bara djús án áfengis þá kostaði það 3 dollara aukalega. hah! eftir nokkur glös af kampavíni með morgunmatnum þá sá ég alveg nýja hlið á edvard munch og öllu hinu skemmtilega sem var í moma. það er alveg á hreinu að svona verður sunnudags-dagskráin fyrir mína gesti héreftir.
p.s macaulay culkin er dúlla. hann var í barnes og noble áðan.
Posted by audur at 11:37 EH | Comments (2793)
mars 12, 2006
sumardagur hinn fyrsti
það var æðislegt veður í gær. eins og góður sumardagur á íslandi. og eins og heima á íslandi þegar hitastigið fer upp fyrir 10gráður þá sást hér í bera leggi og sveittar tær. það er því ekki sér-íslenskt að fólk gleymi sér örlítið í gleðinni yfir smá sumarblíðu og skelli sér í stuttbuxur við minnsta tilefni. ég tók meira að segja þátt í þessari gleði með því að reyna að vera bara á skyrtunni. sú viðleitni entist ekki lengi en ég gladdist hinsvegar þeim mun meira yfir nauðsyn sólgleraugnanna. ég sat á bekk á union square, las blöðin og smá í skólabókunum og fannst ég vera ýkt mikil city girl.
svo gerðist það í gær að ég lét til leiðast og flutti inn á myspace.com. þar eru allir samt svo kúl eitthvað. well, kannski er þetta ýkt skemmtó. kemur í ljós. ég er /audursaudur if anyone is interested...
styttist í spring break og í stutta íslandsferð. ójá.
Posted by audur at 02:44 FH | Comments (2792)
mars 10, 2006
föstudagur til fjár og gleði
ég er komin með heimasíma. númerið heima í stofu/svefnherbergi/eldhúsi er +1 646 649 2303. feel free to call anytime.
annars þá gerði ég óformlega verðkönnun á símtölum til útlanda og niðurstöðurnar eru skemmtilegar. eða eitthvað.
hér eru þær:
hjá símanum er hægt að velja sér vin í útlöndum með heimasíma eða gsm og fá 50% afslátt af mínútuverði.
hjá símanum er hægt að spara 12-40% með því að nota forvalið 1100 í stað 00 (til mín væri þá 110016466492303).
hjá símanum er upphafsgjald fyrir símtöl til útlanda 4,75 kr en hjá ogvodafone 3,75 kr.
hjá símanum kostar 19,90 kr að hringja úr heimasíma til bna, 14,90 kr ef notað er forvalið 1100. skiptir engu hvort hringt er í erlendan heimasíma eða farsíma.
hjá ogvodafone kostar 19,90 kr að hringja úr heimasíma í erlendan heimasíma, 39,90 kr úr heimasíma í erlendan farsíma.
hjá símanum kostar 24,90 kr að hringja úr farsíma til bna ef notað er forvalið 1100. skiptir engu hvort um ræðir gsm áskrift eða frelsi og eins og áður skiptir engu hvort hringt er í erlendan heimasíma eða farsíma.
hjá ogvodafone kostar 29,90 kr að hringja úr farsíma í erlendan heimasíma og 49,90 kr að hringja úr farsíma í erlendan farsíma.
sms hjá ogvodafone til útlanda kosta alltaf 10,70kr en upplýsingar um verð fyrir sömu þjónustu hjá Símanum fann ég ekki enda heimasíðan þeirra alveg dösuð. skoðið textann undir 'ódýrari símtöl til útlanda með 1100' yfirskriftinni.
til samanburðar er smá samantekt á kostnaði við gsm símtöl innanlands.
símtöl innan sama kerfis eru ódýrust, kosta 10,90 kr hjá ogvodafone og 11 kr hjá símanum.
hjá símanum er mínútuverðið 23 kr fyrir símtöl í heimasíma og í farsíma í öðru kerfi.
hjá ogvodafone er mínútuverðið á bilinu 15,50 kr upp í 23,10 kr eftir því hvaða áskrift maður er með.
jii hvað þetta er orðið langt og leiðinlegt. *andvarp!
en boðskapur þessa pistils: 1) það er ekki eins dýrt að hringja til útlanda og maður heldur og 2) það er glæpsamlega dýrt að hringja á milli símkerfa.
annars þá er það að frétta héðan úr nýju jórvík að um helgina á að vera sól og blíða loksins. af því tilefni verður því hægt að finna mig á góðum stað í miðgarði með teppi, sólgleraugu og nokkrar dúllur frá magnoliu bakaríinu í nesti (dúlla verandi skv. ordabok.is íslensk þýðing á orðinu cupcake) næstu daga.
gleðilega helgi!
Posted by audur at 02:22 FH | Comments (2792)
mars 09, 2006
bad bað
ég lét loksins verða af því að kaupa mér tappa í baðkarið um daginn. svo núna í kvöld ætlaði ég aldeilis að fara í gott og langt bað þar sem ég hafði ekki farið í bað í möörg ár og búin að sakna þess mjög. ég lét renna í, setti smá freyðidót út í og kveikti á kertum!!! já já voða rómó eitthvað. but no. it was not meant to be. ég var búin að liggja í svona 30 sek þegar það er bankað á hurðina hjá mér. eitthvað sem gerist aldrei. ég hugsaði fyrst að ég hlyti að vera að ruglast, það væri verið að banka hjá indversku prinsessunni sem býr á móti mér. nei nei, nýtt bank og núna alveg pottþétt á minni hurð. ég stökk á fætur, í slopp og fór til dyra með froðu út um allt. þá var þar á ferðinni maðurinn sem býr beint fyrir neðan mig að kvarta undan vatni sem lak úr loftinu hjá honum!!! hann vildi láta mig vita að hann væri búinn að kalla á húsvörðinn og hann væri væntanlegur til á kíkja á málið. what! ég rétt komst í buxur áður en húsvörðurinn mætti á svæðið og sýndist sem hann hafi einnig þurft að klæða sig í flýti. amk var taglið hans enn undir öfugum bolnum (ójá, hann er með sítt gráttsprengt hár sem hann geymir í tagli), hann lyktaði frekar illa (sem hann gerir nú reyndar oftast) og svo var hann í engum sokkum (hann fór úr skónum áður en hann steig ofan í baðkarið mitt en ég er enn að gera það upp við mig hvort það hafi verið af hinu góða eða ekki, tærnar hans minntu mig nefnilega á eitthvað úr lord of the rings).
þrátt fyrir miklar spekúlasjónir og hlaup á milli íbúða þá fannst engin skýring á þessum leka. ég sat með hálfblautt hárið, í buxunum og sloppnum í klukkutíma eftir þetta og ákvað í framhaldi af því að halda mig við sturtuna á næstunni.
Posted by audur at 12:26 FH | Comments (2792)
mars 06, 2006
óskar dóni
ég horfði á óskarinn í gær eins og svo margir. var ágætt svosum. ég átti samt von á að fara að skæla oftar. mér fannst þetta allt vera of sviðsett og kjánalegt. meira að segja lærðir leikarar púlla ekki þessar löngu vandræðalegu bjánakynningar. og svo eru skipuleggjendur afhendingarinnar algjörir dónar. í fyrsta lagi að setja tónlist á um leið og verðlaunahafarnir opna munninn og slökkva svo bara á míkrafóninum ef fólk talar of lengi er bara ljótt. betra væri ef þeir reyndu að vera smekkmenn og slökkva bara strax á þessum leiðinlegu sem draga upp fyrirfram skrifaðar ræður og þakka öllum sem þeir hafa talað við á lífsleiðinni og leyfa heldur hinum sem segja múshí og sentimental sögur að tala lengur. ég vil sjá gleði og tár og skjálfandi hökur.
en það eru fleiri en pródúsentarnir sem eru dónar. 'tísku'spekúlantarnir keppast við að velja bestu og verstu kjólana en eru gersneyddir öllum smekk og gáfum. ég efast um að þeir viti hver nicolas ghesquière og frida giannini eru. (að mínu mati kóngurinn og drottningin í dag; karl lagerfeld being the father, the son and the holy coat) ok reyndar ég er bara bitur og í fýlu því ég er ekki sammála þeim. mér fannst michelle williams vera langsamlega flottust. og hananú.
Posted by audur at 11:08 EH | Comments (2792)
mars 02, 2006
í stjörnuþoku
fór í hammerstein ballroom í gær til að hlýða á strokes. ég hef ekkert hlustað á nýja diskinn þeirra og þekki nánast ekkert til eldra efnis nema þeirra laga sem voru stundum spiluð á kaffibarnum forðum tíð. en jiii hvað þeir voru skemmtilegir. og sætir. og ýkt kúl. mæ ó mæ. ætla núna að hlusta meira og betur. næst þegar ég fer á tónleika með þeim þá ætla ég að kunna alla textana og syngja með. veit samt reyndar að það mun ekki takast. ég er vonlaus þegar kemur að því að muna söngtexta. kann yfirleitt bara fyrstu línuna eða part af viðlaginu og ekkert meir. whatever. en já, svo komst ég að því að ég er stjörnusökker. ég varð starstruck þegar ég tók eftir að lucy liu, drew barrymore, gwyneth paltrow og chris martin voru í nokkurra metra fjarlægð. (halli segir 7.25m og ég gæti alveg trúað að hann hafi rétt fyrir sér) jii ef ég verð einhvern daginn up close and personal með fræga fólkinu mun ég vera svo hræðilega ókúl. pottþétt bara flissa og stama. en þetta var svo skemmtilegt. þær eru sætari ef eitthvað er og chris mcdreamy martin er æðislegur. við halli vorum vandræðaleg þegar við vorum að tala um þau (eða mest ég) og bjuggum til ný nöfn á þau (mest halli því hann er svo sniðugur) dröfn bárðar, lísa lárusar, gunnfríður pálma og kristján marteins. okkur fannst þetta endalaust fyndið. veit ekki lengur með endalausa partinn. en boj hvað það var gaman.
Posted by audur at 01:44 EH | Comments (2792)