mars 09, 2006

bad bað

ég lét loksins verða af því að kaupa mér tappa í baðkarið um daginn. svo núna í kvöld ætlaði ég aldeilis að fara í gott og langt bað þar sem ég hafði ekki farið í bað í möörg ár og búin að sakna þess mjög. ég lét renna í, setti smá freyðidót út í og kveikti á kertum!!! já já voða rómó eitthvað. but no. it was not meant to be. ég var búin að liggja í svona 30 sek þegar það er bankað á hurðina hjá mér. eitthvað sem gerist aldrei. ég hugsaði fyrst að ég hlyti að vera að ruglast, það væri verið að banka hjá indversku prinsessunni sem býr á móti mér. nei nei, nýtt bank og núna alveg pottþétt á minni hurð. ég stökk á fætur, í slopp og fór til dyra með froðu út um allt. þá var þar á ferðinni maðurinn sem býr beint fyrir neðan mig að kvarta undan vatni sem lak úr loftinu hjá honum!!! hann vildi láta mig vita að hann væri búinn að kalla á húsvörðinn og hann væri væntanlegur til á kíkja á málið. what! ég rétt komst í buxur áður en húsvörðurinn mætti á svæðið og sýndist sem hann hafi einnig þurft að klæða sig í flýti. amk var taglið hans enn undir öfugum bolnum (ójá, hann er með sítt gráttsprengt hár sem hann geymir í tagli), hann lyktaði frekar illa (sem hann gerir nú reyndar oftast) og svo var hann í engum sokkum (hann fór úr skónum áður en hann steig ofan í baðkarið mitt en ég er enn að gera það upp við mig hvort það hafi verið af hinu góða eða ekki, tærnar hans minntu mig nefnilega á eitthvað úr lord of the rings).
þrátt fyrir miklar spekúlasjónir og hlaup á milli íbúða þá fannst engin skýring á þessum leka. ég sat með hálfblautt hárið, í buxunum og sloppnum í klukkutíma eftir þetta og ákvað í framhaldi af því að halda mig við sturtuna á næstunni.

Posted by audur at 09.03.06 00:26

Comments

ha ha ha. já haltu þig við sturtuna og ég mæli með klór til að skrúbba húsvarðarsubbutásusveppina úr baðkarinu. better luck next time...!

Posted by: arna at 09.03.06 05:04

Keyptu bara bala, settu hann í baðið, og farðu í bað í balanum í baðinu.

Posted by: Halli at 10.03.06 21:53