febrúar 27, 2006
jæja
nokkrar nýjar myndir komnar inn. langar að þakka febrúargestunum fyrir myndasmíðina og elínu fyrir tannsmíðina.
Posted by audur at 10:50 EH | Comments (2792)
febrúar 25, 2006
hræsni
ég horfi stundum á sjónvarpið hér í ameríku. ég horfi stundum á endursýningar á sex&thecity. það er sýnt klukkan 11 á kvöldin. samt sem áður mega engir kossar sjást og ekkert kelerí og ekki einu sinni tal um kossa né kelerí. um daginn var dirty dancing sýnd og eitt aðal atriði myndarinnar, þegar jennifer grey og patrick swayze eru að æfa lyftuna í vatninu, var klippt út. smá gegnsær bolur er náttúrulega stórhættulegur siðferðiskennd amerískra borgara. áðan var svo verið að sýna prince coming to america. í einu upphafsatriða þeirrar myndar er verið að baða eddie murphy með aðstoð þjónustustúlkna. það atriði var sýnt í eina millisekúndu. og þjónustustúlkurnar voru hvergi sjáanlegar enda minnir mig að þær hafi verið berbrjósta í upprunalegu útgáfunni. forrest gump var líka í sjónvarpinu og bumper stickerinn sem hann fann upp var ekki lengur 'shit happens' heldur 'it happens'. æi svona skil ég ekki. sérstaklega í ljósi þess að bara í fréttatímum stöðvanna eru miklu hræðilegri og alvarlegri hlutir. helstu fréttir undanfarinna daga eru t.d þær að kona stökk út úr brennandi húsi og dó. 4 ára gamall strákur lést á heimili sínu eftir að kærasti móður hans henti honum á vegg. 6 ára gömul stúlka var barin til dauða af fósturföður sínum þrátt fyrir að barnaverndarnefnd borgarinnar hafi vitað af ástandinu á heimili stúlkunnar í marga mánuði. 24 ára gamall lögreglumaður var skotinn til bana af félögum sínum fyrir misskilning þar sem hann lá í blóði sínu eftir að hafa verið laminn í klessu af hópi ræningja. réttarhöld yfir móður sem skar handleggina af 10mánaða gamalli dóttur sinni voru dæmd ómerk. 17 voru handteknir í nasista fjöldagöngu og fóstureyðingar eru nú ólöglegar í south dakota.
mikið væri gott ef alvarlegustu vandamál ameríku væru klúrir brandarar og brjóst í sjónvarpi.
Posted by audur at 11:04 EH | Comments (2792)
febrúar 23, 2006
afmælis
arna sys á afmæli í dag. það eru 19 ár síðan ég var á leiðinni á landsleik í handbolta í laugardalshöllinni með ingu frænku sem breyttist svo í ferð á fæðingadeildina að skoða hana í fyrsta skipti. ég man að til viðbótar við að eignast litla systur þá fékk ég ný föt úr benetton þetta kvöld. rauðar rifflaðar flauelsbuxur og rauða og hvíta ullarpeysu í stíl. ég man að peysan stakk pínu en ég harkaði það af mér því mér fannst hún svo fín. ég man líka að mér þótti þessi viðbót við fjölskylduna góð. gott að fá smá liðsauka. þegar hún var orðin aðeins stærri þá gaf ég henni stundum pening svo hún gæti farið út í sjoppu og keypt sér smá nammi en það var oftast vegna þess að mig langaði í nammi en nennti alls ekki út í sjoppu sjálf. ég stakk líka endalaust upp á að fara í fimleikaleik þar sem ég var þjálfarinn og lét hana gera allskonar mis-sniðugar æfingar þegar mamma&pabbi sáu ekki til. hún var orðin mjög flink og átti framtíðina fyrir sér en svo hætti henni að þykja þessi leikur skemmtilegur einhverra hluta vegna. þegar hún var svona 6 ára man ég eftir að hafa verið að spila undir hjá henni á samspili í tónmenntaskólanum og henni þótti það ekki ganga nógu vel, hún hætti að spila, rauk út og skildi mig eftir við píanóið. dramakrútt. en allavega, sum atvikin eru kannski ekki my finest moments en ég vil meina að ég viti betur í dag. veit samt ekki hvort arna sé sammála......
hamingjuóskir og afmælisknús elsku systir.
Posted by audur at 01:56 FH | Comments (2792)
febrúar 21, 2006
vikan sem leið
jæja. what goes up must come down i guess. er pínu leið. sjómaðurinn farinn og allir hinir líka. og svo þetta fjandans veður hérna. ég vil ekki meiri kulda takk. ég sver. mig langar í sól og hita og meira segja þó sviti og klístur fylgi með. en nei. sá það áðan í fréttunum að það ætti að kólna enn meir. ég eyddi kvöldinu í að kaupa bikiní hjá victoriu og bjóða í sumarskó á ebay. og halli, ég er eiginlega búin með allt nammið þitt. 2 lindubuff er það eina sem eftir er. nefnilega smakkaði sjómaðurinn sjálfur á góðgætinu á leiðinni og svo kenndi ég honum líka hvernig maður ætti að haga sér þegar þristar og lakkrísreimar eru til á heimilinu; borða svoleiðis í morgunmat og sem desert eftir allar aðrar máltíðir. mig langar pínu að biðja um nýja sendingu en svo langar mig líka að passa í bikiníið.
síðustu daga hef ég lært allskonar nýtt. ég eeeelska grey's anatomy og hata hata hata fedex. módelstörf eru vanmetin. metropolitan óperan er undurfögur og sumir leigubílstjórar vita ekki hvar hún er. ekki panta mojito á barnum á rainbow room því þeir kunna ekki að búa hann til og vita ekki hvað þykir eðlilegt verð fyrir slíkan drykk. tölvupóstur getur verið handbendi djöfulsins og gamlir greiðar geta dúkkað upp á forsíðum dagblaðanna án nokkurs fyrirvara.
hvað varðar uppfærslu á myndum þá hef ég nánast enga mynd tekið síðan í rassibala. en ég mun taka mig á og reyna að setja nýjar myndir inn fljótlega. ég vona að þið gerið ykkur samt grein fyrir að þetta verða ekkert sérlega áhugaverðar myndir. ég að borða, ég í skólanum, ég ekki að gera neitt merkilegt.... ég nefnilega hugsaði ekki þegar allir þessir æðislegu gestir voru í borginni að memorexa þau moment. minnir samt að á milli rétta og kokteila hafi þeir nú tekið svosum eins og eina mynd eða tvær. kannski ef ég bið fallega þá get ég fengið nokkrar að láni.
svo auglýsi ég eftir gestum.
Posted by audur at 01:43 FH | Comments (2792)
febrúar 13, 2006
grís fór yfir vín og kom aftur svín
sjómaðurinn minn er kominn í land. loksins. mikil hamingja og mikil veisluhöld framundan. á morgun verður snæddur kvöldverður á fínasta veitingahúsi manhattaneyju og hinn er það enginn annar en domingo sem mun syngja ó svo fallega fyrir okkur (mig, sjómanninn og yndislega vini frá íslandi) í óperu new york borgar. svo fer ég á broadway sýningu eftir mánuð eða svo. mjög menningarleg ekki satt? ég nefnilega fékk vitrun í jólafríinu mínu (sumir myndu reyndar segja að ég hafi fengið spark í bossann en ég kýs að segja hið fyrrnefnda). í jólakorti frá foreldrum mínum, skrifað af pabba, stóð nefnilega þetta: 'grís fór yfir vín og kom aftur svín'. hann hafði (og hefur) áhyggjur af því að ég eyddi öllum mínum stundum (og peningum) í búðum. ég viðurkenni alveg að ég fylgist grannt með þeim en ég er fjölhæf, mér tekst að gera marga hluti í einu; fylgjast með vöruúrvali búðanna OG vera menningarleg. ég kýs að trúa því amk. en já. sniðugir þessir pabbar.
Posted by audur at 11:47 EH | Comments (2792)
febrúar 12, 2006
fönn fönn fönn
undarlegt veður og ástand núna í new york. vaknaði í morgun og þá voru snjóskaflar fyrir gluggum og hurðum. það var búið að tala um að það yrði snjóstormur en ég hafði enga trú á þessum spádómum veðurfræðinganna hér í landi. sérstaklega fannst mér ótrúlegt þegar þeir spáðu að snjókoman myndi hefjast klukkan þrjú. en þeir höfðu rétt fyrir sér eða svona næstum því, snjókoman byrjaði klukkan fjögur. hér eru engir bílar á götum og ekkert fólk á rölti. ef það væri ekki sunnudagur væri sennilega 'snowday' og allt lokað. gæti reyndar orðið svo á morgun ef það heldur áfram að snjóa. smá snjókoma og enginn þorir út.
svo sá ég smávegis af opnunarhátíð ólympíuleikanna í sjónvarpinu á föstudaginn. hitti svo vel á og sá akkúratt þegar íslenska liðið gekk inn á leikvanginn. ég varð hinsvegar alveg brjáluð eftir að hafa heyrt ummæli þulanna á nbc um ísland. þeir töluðu í eina millisek um þá staðreynd að ísland hafi aldrei unnið gullverðlaun á vetrarólympíuleikum þrátt fyrir nafnið. svo kom löng umræða um hversu mikið partýland ísland væri og að 50þús bandarískir ferðamenn kæmu þangað árlega til þess að sletta úr klaufunum. drykkja og skemmtanasýki íslendinga væri alveg hreint lygileg!!! á meðan þulirnir töluðu um íþróttir og árangur hinna ýmsu landa á ólympíuleikum þá voru það partýin sem ísland hafi fram að færa. dirty weekend herferðinar allar hafa greinilega skilað sínu.
Posted by audur at 02:46 EH | Comments (2792)
febrúar 10, 2006
ó sú hljómfagra rós
ég var á tónleikum. æðislegum tónleikum. ég var með gæsahúð og tárvot augu í tvær klukkustundir. svo í einhverri undarlegri sælu eyddi ég fúlgum fjár í hljómsveitarpeysu! veit ekki hvort kaupin verði jafn góð þegar ég ranka við mér á morgun. og ég sem meira að segja var andsnúin þessari hljómsveit í þó nokkurn tíma ekki alls fyrir löngu. eða jú pínu löngu reyndar. (mér fannst ég bara hafa heyrt ágætis byrjun aðeins of oft á tímabili) en nóg um það. takk er dásamleg. bestustu augnablik tónleikanna voru þegar jónsi mundi ekki textann að starálfinum og sótti svindlmiða í vasa sinn nokkrum sinnum til að rifja upp og þegar lúðrasveitin birtist á sviðinu. svo var pínu fyndið en þeir þurftu að hætta í miðju kafi á einu lagi því það heyrðust læti frá billy joel sem var með tónleika í næsta sal inn á svið til þeirra og truflaði. uptown girl og glósóli er ekki góð blanda. ég hefði reyndar keypt bol með uptown girl ritað í semelíusteinum hefði bara ekki verið búið að loka. það var nú meiri óheppnin. reyndar ekki mesta óheppni kvöldsins því við halli buðum einum 'heppnum' samnemanda hans að koma með okkur á tónleikana. nema hvað svo kom í ljós að ég fékk einungis tvo miða en ekki þrjá eins og ég hafði verið látin halda og allir miðar búnir. svo þegar við halli vorum búin að gráta úr okkur augun yfir þessari ólukku, búin að senda manninn heim og komum í sætin okkar sjáum við að við vorum með heila stúku útaf fyrir okkur. ég veit ekki hvort halli ætlar að segja vini sínum frá þessu. of svekkjandi held ég. en tónleikarnir: himneskir.
Posted by audur at 01:16 FH | Comments (2792)
febrúar 05, 2006
super bowl sunday
er í dag. mikill spenningur í gangi og fullt af partýum með allskonar sveittum veitingum. reyndar finnst mér eins og spenningurinn sé að mestu leyti í kringum sýninguna í hálfleik og auglýsingarnar í hléum. fyrirtæki leggja brjálæðislega mikla peninga í þessar auglýsingar sem oftast eru gerðar sérstaklega fyrir þennan leik. auglýsingarnar eiga það svo sameiginlegt að vera allar annaðhvort sexy eða fyndnar og hafa sjaldnast eitthvað að gera með brandið sjálft. svo kostar líka slatta að auglýsa á þessum tíma; 30sek. auglýsing kostar 2.5 milljón dollara.
jessica simpson er búin að selja pizza hut sálu sína og syngur í auglýsingu sem verður frumsýnd í kvöld 'these bites are meant for poppin' í stað 'these boots are made for walking'. fallegt. en það er kannski skiljanlegt að pizza hut vilji eyða milljörðum í að auglýsa á þessum tíma með þessari ungu snót því skv. könnunum þá munu 52% þeirra sem horfa á leikinn panta og borða pizzu í hálfleik. í þessari sömu könnun kom líka í ljós að jessica simpson var í 5.sæti yfir þau stórstirni sem fólk vildi helst að sendist með pizzuna þeirra. efst á listanum var jennifer aniston. hún er líka voða sæt and very all-american. áfram jenny. brad pitt komst á listann en ekki angelina. hmm. skil það ekki alveg. angelina er svo vellukkað eintak af manneskju að það er eiginlega svindl. og þá er ég ekki bara að tala um fínar varir eða langa leggi heldur er hún svo dugleg að láta gott af sér leiða. áfram angie. brad pitt er hins vegar dottin út af mínum listum. (smá reikningsdæmi hérna, skilnaður þeirra jen og brad var official í október, angelina á að eiga 2.maí.... you do the math) prinsipp mál að vera búinn að skilja við eiginkonuna áður en maður barnar aðra konu.
kannski að ég bjóði í superbowl partý. baki brownies og búi til crab cakes (það er víst jafn klassískt og flatbrauð með hangikjöti). hmm eða bara panti pizzu. reyndar verða þeir sem hafa áhuga á sjálfum leiknum að þola það að fyrir hvern mann á leikvellinum eru 3 í mínu sjónvarpi. smávægilegt loftnetsvandamál nefnilega. partý anyone???
Posted by audur at 01:30 EH | Comments (2792)