janúar 30, 2006
á góðum degi
er mér boðið í klippingu, í hand- og fótsnyrtingu, að styrkja börn í þriðja heims löndum, ættleiða gæludýr og hjálpa heimilislausum. allt bara á leiðinni heiman frá mér í skólann. og allt þetta bara ef ég er til í að borga. ég held þau sjái á mér að ég kunni ekki að segja nei. ég reyni alltaf að vera með ipodinn í eyrunum til þess að minnka líkurnar á því að þau stökkvi á mig þegar ég er á hættusvæðunum. hingað til hefur það reyndar engu breytt. ég hef orðið að bregða á það ráð að skrökva. ég segi að ég sé bara ferðamaður, sé ekki með amerísk kort eða hreinlega að ég skilji ekki ensku svo vel!!! mér líður samt einhvern veginn aðeins betur að vera smá kurteis og hlusta á það sem þessir kynningarfulltrúar hafa að segja þó ég viti að ég ætli ekki að eyða $60 til að fá klippingu og nudd og andlitsbað og allskonar dúll og ætli ekki að ættleiða nokkra heimilisleysingja. ég hef ekki hjarta í mér að hunsa þau alveg. í nokkrar millisekúndur áður en ég er stöðvuð þá held ég andanum niðri í mér í þeirri von að þetta sé ekki PETA eða álíka brjálæðingsdýraverndunarsinnar ef svo óheppilega vill til að ég puntaði mig þann morguninn. ég reyndar þori eiginlega aldrei út í pelsinum mínum en stundum tek ég séns og fer út með skinn um hálsinn. allan tímann sem ég skarta því þá bíð ég eftir að fá yfir mig heila fötu af rauðri málningu, tómata í hausinn eða skyrp í andlitið. ég er að hugsa um kannski að ættleiða pelsinn og skinnin mín; hanga á union square og stöðva undankomulausa nýgræðinga í borginni og heimta að þeir taki að sér eitt stykki gráan notaðan pels frá parís sem lyktar ekki svo vel. samt ábyggilega betur en sum gæludýranna.
Posted by audur at 10:12 EH | Comments (2792)
janúar 29, 2006
íslendinganýlendan
ég hitti fleiri íslendinga um helgina. óvænt. í þetta skiptið reyndar good surprise. hitti vinkonu mömmu og pabba og son hennar í búð í soho. þau voru líka svo elskuleg að bjóða mér í lunch. á leið okkar að finna einhvern stað til að borða á heyrði ég í og mætti fleiri íslendingum. þeir virtust reyndar vera jafn súrir yfir því að heyra íslensku á wooster street og ég undir venjulegum kringumstæðum. held að það sé komið nóg af óvæntum íslendingauppákomum. ég trúi ekki öðru en að þessu íslendingaþema fari að ljúka. ég er líka að bíða eftir allt íslenska nammið sem ég keypti í leifsstöð klárist. ég er nefnilega að reyna að vera dugleg í ræktinni og hrista af mér jólakílóin sem ég flutti með mér frá íslandi en kem svo heim eftir æfingu og borða hálfan poka af bingókúlum eða freyjukaramellum. þetta var meira að segja svo slæmt á tímabili að fyrsta sem ég gerði þegar ég vaknaði á morgnana var að teygja mig í súkkulaðirúsínurnar og skófla í mig heilli lúku. þær eru búnar sem betur fer. ég hef enga sjálfstjórn. en mig mun ekki langa í súkkulaðirúsínur í laaaangan tíma. væri samt til í kókosbollu.
Posted by audur at 11:22 EH | Comments (2792)
janúar 28, 2006
u.s.a = united states of amnesia
ég sá svo góða mynd í bíói áðan. það er svo góð tilfinning. ég vona samt að ég sjái ekki mynd eftir nokkra mánuði sem heitir "hin hliðin" eða "sannleikurinn á bakvið bla bla". ég verð þá svo svekkt því það er eitthvað svo vandræðalegt að vera plataður. sennilega samt ákveður lockheed martin eða halliburton að stemma stigu við allt þetta illa umtal og styrkja ungan og upprennandi kvikmyndagerðareinstakling til að gera áróðursmynd sér í hag. ef það er þá hægt. og já, myndin heitir 'why we fight'. (note to all = sjá þessa mynd)
svo fór ég á skemmtilega tónleika í gær. ég reyndar þekkti ekkert aðal númer kvöldsins en það skipti engu. upphitunarhljómsveitirnar voru æði. big daddy kane var frábær í rauðu víðu leðurbuxunum sínum og rauðri flaksandi silkiskyrtu í stíl. yndislega 90's. við halli voru eitt stórt og gapandi bros.
reyndar brá mér svolítið þegar ég steig fyrst inn í tónleikasalinn og heyrði "vá finnurðu lyktina?" beint fyrir aftan mig!!! og já - á íslensku. vissulega var lyktin sérstök en að 2 íslenskar stelpur skyldu vera á þessum sömu tónleikum og á þessari stundu beint fyrir aftan mig var of skrýtið. ég hefði betur skilið þetta hefðu þetta verið tónleikar með einhverju íslendingabandi en þetta voru rapptónleikar með mf doom!! mér finnst þetta ekki nógu gott. þetta er í 4. skiptið sem íslendingar dúkka upp á ólíklegustu stöðum og flækjast fyrir mér. ég er orðin nett vænisjúk eftir þetta allt saman. áðan vorum við halli í duane reade apóteki niður í soho og ég þorði ekki annað en að hvísla því ég hélt að einhverjar norskar túristapíur væru íslenskar flugfreyjur.
Posted by audur at 12:52 FH | Comments (2792)
janúar 23, 2006
home sweet home
ég hefði átt að væla aðeins meira yfir að búa í ferðatösku á meðan ég var á íslandi; ég er búin að vera í litlu skókassastóru íbúðinni minni í sólarhring en bý enn í ferðatösku! ég nenni ómögulega að pakka upp. það er svo miklu leiðinlegra en að pakka niður einhvern veginn. samt þarf ég að klifra yfir töskur til að komast á baðið, inn í eldhúsið, til að kveikja á sjónvarpinu og komast út. lati geir á lækjarbakka hefur greinilega yfirhöndina þessa stundina. einum hlut er ég þó búin að koma haganlega fyrir en það eru dúkkulísurnar sem ég fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba. jackie o (dúkkulísan) sómir sér vel á ísskápnum hjá mér og fær nýjan búning oft á dag.
ég fór í skólann í dag og líst vel á önnina. mér gekk betur en ég átti von á núna í haust og það liggur við að gamalt keppnisskap hafi gert vart við sig - langar gera enn betur næst og helst bara vera klárust og flinkust....
annars þá er það lánasjóður íslenskra námsmanna sem fer í mínar fínustu þessa dagana. mér líður alltaf eins og ég sé 5 ára að suða um sælgæti þegar ég neyðist til þess að tala við þessa súru steinaldarstofnun. aftur á móti eru þeir svona líka ægilega þjónustulundaðir þessir þjónustufulltrúar að það er hreinn unaður að bíða á línunni í maaaargar mínútur eftir sambandi. heh.
ég var á íslandi í mánuð en gleymdi samt að gera svo margt. gleymdi að fá mér kókosbollu og flatbrauð með hangikjöti til dæmis og að skila einni spólu en það er nú kannski bara klassískt. gleymdi líka að gera fullt í viðbót sem ég man ekki.
ég var líka búin að lofa að setja inn heimferðarsöguna miklu en þar sem halli skrifaði svo fína og greinargóða lýsingu á atburðinum á blogginu sínu þá beini ég bara sjónum ykkar þangað.
svo vona ég að þrátt fyrir langa jólapásu þá fá ég áfram heimsóknir hingað og helst alla leið hingað til newyork.
love.
Posted by audur at 09:25 EH | Comments (2792)