janúar 30, 2006
á góðum degi
er mér boðið í klippingu, í hand- og fótsnyrtingu, að styrkja börn í þriðja heims löndum, ættleiða gæludýr og hjálpa heimilislausum. allt bara á leiðinni heiman frá mér í skólann. og allt þetta bara ef ég er til í að borga. ég held þau sjái á mér að ég kunni ekki að segja nei. ég reyni alltaf að vera með ipodinn í eyrunum til þess að minnka líkurnar á því að þau stökkvi á mig þegar ég er á hættusvæðunum. hingað til hefur það reyndar engu breytt. ég hef orðið að bregða á það ráð að skrökva. ég segi að ég sé bara ferðamaður, sé ekki með amerísk kort eða hreinlega að ég skilji ekki ensku svo vel!!! mér líður samt einhvern veginn aðeins betur að vera smá kurteis og hlusta á það sem þessir kynningarfulltrúar hafa að segja þó ég viti að ég ætli ekki að eyða $60 til að fá klippingu og nudd og andlitsbað og allskonar dúll og ætli ekki að ættleiða nokkra heimilisleysingja. ég hef ekki hjarta í mér að hunsa þau alveg. í nokkrar millisekúndur áður en ég er stöðvuð þá held ég andanum niðri í mér í þeirri von að þetta sé ekki PETA eða álíka brjálæðingsdýraverndunarsinnar ef svo óheppilega vill til að ég puntaði mig þann morguninn. ég reyndar þori eiginlega aldrei út í pelsinum mínum en stundum tek ég séns og fer út með skinn um hálsinn. allan tímann sem ég skarta því þá bíð ég eftir að fá yfir mig heila fötu af rauðri málningu, tómata í hausinn eða skyrp í andlitið. ég er að hugsa um kannski að ættleiða pelsinn og skinnin mín; hanga á union square og stöðva undankomulausa nýgræðinga í borginni og heimta að þeir taki að sér eitt stykki gráan notaðan pels frá parís sem lyktar ekki svo vel. samt ábyggilega betur en sum gæludýranna.
Posted by audur at 30.01.06 22:12
Comments
Halló fröken Oda May, þú att bara að smella þér í leðurbrækurnar og spássera um í pelsinum eins og ekkert c!!!! Luv ya
Posted by: Stefán Svan at 31.01.06 06:03
....eða bara lána mér þá. pelsar og skinn eru made to be worn and they deserve it. sendu þetta bara heim með ara næst ;)
Posted by: arna at 31.01.06 14:30
ég held að þú ættir að segja góðan daginn á íslensku við blessaða kynningarfulltrúanna og svo no but no thank you til að eyða ekki dýrmætum tíma þeirra. Hvað pelsina varða..well ég get eiginlega bara ekkert sagt.. er orðlaus.. ætti að segja skamm og áfram PETA...en einhvern veginn hef ég misst baráttuandann með aldrinum.Nú huxa ég bara um fótabað og góðar vídjómyndir. Oj ég er ógeðslegur hræsnari
Posted by: kolka at 31.01.06 18:25
Eða fá þér einnota snýtubréf úr hamstraskinni og heyrnartól úr elgshöfði. Það ætti að þagga niðrí þeim.
Posted by: Halli at 01.02.06 03:15