desember 20, 2005
allt í steik
kæru vinir. takk fyrir þolinmæðina.
óli t á sérstakar þakkir skilið fyrir að aðstoða við endurlífgun á bloggi þessu.
akkúratt þessa stundina er allt í steik; bæði hjá mér og newyork. heilinn á mér er í verkfalli líkt og allir samgöngustarfsmenn borgarinnar. ég þarf að skila síðasta verkefninu mínu á morgun og 8 milljón newyork búar þurfa að komast heim til sín, þ.e.a.s ef þeir komust á annað borð til vinnu í morgun. annars er ég á því að þetta verkfall sé samt pínu sniðugt. carpooling (þegar einn bíll er samnýttur af mörgum á leið á sama stað eða í sömu átt) gæti gert það að verkum að maður kynntist nýju fólki, allavega er það nokkuð pottþétt að þeir sem eru að deila leigubíl tildæmis og þurfa að borga fyrir það hálfan handlegg, eiga það sameiginlegt að vera fústreraðir yfir verkfallinu og geta röflað um ástandið alla leiðina, veitt hvorum öðrum stuðning og hughreystingsknús. og svo er þetta miklu hollara fyrir umhverfið. vá hvað ég er jákvæð. en ég á líka heima rétt hjá skólanum mínum og öllu sem er nauðsynlegt. verst ég finn ekkert jákvætt við stuart hall, bell hooks, lauru mulvey og robert mcchesney. (ef einhver ykkar veit hvaða lið þetta er þá a: eruð þið spes og b: then you know my pain.)
Posted by audur at 08:27 EH | Comments (3264)
desember 19, 2005
halelúja
loksins komið í lag.
Posted by audur at 06:17 EH | Comments (2792)