nóvember 07, 2005
ó boj
ég náði ákveðnum botni um þessa helgi í næringarfræðilegum skilningi. þó ég hafi ekki verið að leggja mig fram til að ná þessum áfanga þá eru bara örfáir sem gætu jafnað metin eða slegið mér við í sukki eftir þessi helgi. (að kamillu og heiði undanskyldum þar sem þær voru partners in crime)
í morgunmat á laugardaginn fékk ég mér íslenskt sælgæti. kamilla óskaði eftir að prófa dunkin donuts og þangað fórum við í hádeginu. svolítið svekkelsi að hitta engar löggur. í kvöldmat fórum við á dallas bbq (þar gátum við setið úti og notið sumarblíðunnar) og fengum risa hamborgara og frosna margarítu- texas size....
þar sem við vorum örlítið dasaðar eftir barhopp og tekílaskot í mjólkurglösum frá kvöldinu áður þá var pantaður greasy chinese í síðbúinn morgunverð í dag. svo var naslað á flögum, himnesku guacamólíi, íslensku og tyrknesku nammi og já, eiginlega öllu því sem ísskápurinn og nammiskápurinn hafði að geyma.
needless to say, stefnan er sett á ræktina þrisvar á dag til jóla. og auðvitað forever hehem.
Posted by audur at 07.11.05 00:46
Comments
bíddu bara. mundu að þú verður á íslandi um jólin og þau standa alveg fram í febrúar. þú veist alveg jafn vel og ég að þú stenst ekki mömmukossana, súkkulaðibitakökurnar, zörurnar, ísinn, súkkulaðimúsinn, sósurnar, feitt kjöt, bjór og jólaöl, malt og appelsín, kakó með rjóma o.s.frv. Teldu kalorírunar þar....!
Posted by: arna at 07.11.05 09:49
einhver var líka að tala um "Thanksgiving" boð og þar má örugglega finna eitthvað af "karolínum"
Posted by: anna at 07.11.05 11:43
já sko jólarjúpan og thanksgivingkalkúnninn eru máltíðir sama hversu margar brúnaðar kartöflur og margar ausur af sósu fylgja með.... ég held að kaffi og kleinuhringur teljist seint til máltíðar af sama kaliber.... þannig að bring it on, sósur og kartöflur og heimalagaðan ís og smákökur og jólakonfekt og allt hitt. það er alvöru. og ég get varla beðið. reyndar langar mig líka bara í steiktan fisk. eða bara heimalagaða máltíð.
Posted by: auðurkaritas at 07.11.05 17:07
Steiktan fisk?
Ég veit að þú varst komin út á ystu nöf, en easy now. Nema þú sért að meina þetta...og þá skal ég glaður kaupa fínt flak í Chinatown, velta því uppúr raspi og steikja með lauk.
Veistu...ég væri alveg til...djí...
Posted by: Halli at 07.11.05 22:11
Maður fær nú bara vatn í munninn við þessa upptalningu hjá Örnu... En jú steikti fiskurinn hennar mömmu heillar alltaf þegar maður er búinn að sukka of mikið eða elda of mikið sjálfur.
.....Svo skilur fólk ekkert í því afhvjeru það kemur 10-20 kg of þungt frá USA...????
Posted by: Þórný at 08.11.05 16:27
Ég er nú búinn að léttast/grennast/mjókka vottever, bara afþví að vera hér, hafa mikið að gera og alltofmikið um að velja til að borða.
Fitnaði/þyngdist um næstum 4 kíló síðustu jól þegar ég var á Íslandi (í mánuð), stefni á það sama núna í ár.
Þessi Freshmen-Twenty eru því ekki á mér. En ég hef nú nokkur ár til að hlaða á mig gervirjóma.
Posted by: Halli at 09.11.05 00:19