nóvember 18, 2005
allsnægtir ameríku
kæru vinir. oft hefur það verið sagt að allt fáist í ameríku eða allt sé til í ameríku. ég hef komist að þeirri niðurstöðu að sennilega sé þetta satt. það er nefnilega meira að segja svo að hér í newyork, í miðri soho, er thorvaldsen! - og já mikið rétt: ég er að tala um skemmtistaðinn í austurstræti í reykjavík á íslandi. mjög heppilegt fyrir mig ef svo ólíklega vill til að yfir mig hellist sú löngun að fara á 'skemmtistað' í líkingu við thorvaldsen eða heimþrá af undarlegri sort. ég fer þá bara í 66N búðina á mercer street á miðvikudagskvöldum fram til jóla.
í 66N partýinu, þar sem gullfoss og geysir léku af alkunnri snilld sl. miðvikudagskvöld, var að finna sjúklega sætar íslenskar stelpur (líka nokkur módel og smástirni) sem voru sumar hverjar aðeins of tipsy, fulla ameríska business menn sem voru líka búnir að drekka aðeins of mikið og farnir að vera áhyggjufullir yfir því að vera að missa af umtöluðum ókeypis íslenskum drætti og því farnir að verða ansi víðförlir með hendur og fætur og svo fullt af flíspeysum. gerist ekki íslenskara = alveg eins og thorvaldsen á ferðamannseasoni.
Posted by audur at 10:50 EH | Comments (2792)
nóvember 15, 2005
ættarmót litlu reykjavíkur
mugison var krútt. ekki krúttkynslóðin því það er hræðilegt níðyrði heldur alvöru krútt. amk fékk ég gæsahúð þegar hann söng lagið með rúnu sinni og hún var á gítarnum hans. hmm já pínu flókið kannski, en sko, hann var með svona vídjó af henni að syngja sem endurspeglaðist á gítarnum hans þegar hann spilaði og söng lagið með henni. þið vitið, svona digital dúett... æi hmmm, þetta er kannski ekkert skiljanlegra? allavega, ó svo fallegt.
svo held ég að fyrst að litla ítalía er varla til lengur að það ætti bara að stofna litlu reykjavík í staðinn. amk var mjög heimilislegt að vera á bar og heyra íslensku í ekki svo mikilli fjarlægð. það væri alveg hægt, einhver sagði að það væru 300 íslendingar hérna í newyork!!! og svo er meira að segja komið á hreint næsta íslendingadeit - gullfoss og geysir eru að spila í partýi í nýju 66N búðinni í soho á miðvikudaginn! jiminn.
remind me again why i moved here....
Posted by audur at 12:13 FH | Comments (2792)
nóvember 13, 2005
ekkert merkilegt og ómerkilegir merkilegir
það hlaut að koma að því. ég eldaði í kvöld. reyndar bara fyrir mig eina og bara hafragraut en engu að síður tímamót í mínu newyork lífi. héðan í frá verður það vonandi oftar en á 3ja mánaða fresti. held ég ætti samt engu að lofa því eins og mér þykir hafragrautur góður þá gæti hann orðið einhæfur til lengdar.
undanfarna daga hef ég hins vegar verið að hanga svolítið með fræga fólkinu. á fimmtudaginn vorum við p.diddy í bloomingdale's, laugardeginum eyddum við jennifer connelly og paul bettany í moma og í dag vorum við keira knightley að rölta um soho. svo er það mugison á morgun þar sem allir íslendinga-njújorkerar munu koma saman og hlýða á ljúfa tóna. (grunar reyndar að það myndi gerast þó gylfi ægis væri að troða upp...) ísland - best í heimi.
Posted by audur at 08:41 EH | Comments (2792)
nóvember 09, 2005
vonbrigði og svekkelsi
við ari fórum í bíó í gær. ekkert merkilegt við það nema þá helst að þetta var sennilega sú stund sem ég hef verið í hvað mestri lífshættu á ævinni. ja allavega í mestri hættu að verða fyrir skotárás. (kannski örlítið of átakanlega til orða tekið en...) við álpuðumst nefnilega óvart í sama kvikmyndahús og var að frumsýna nýjustu mynd fiftycent. (fyrir þá sem ekki vita þá er hann mjög duglegur að eignast óvini og hefur verið skotinn 9 sinnum þar af einu sinni í andlitið). við komum í bíóið í þann mund sem frumsýningunni var að ljúka og smám saman jókst fjöldi risavaxinna, kolbikarsvartra lífvarða og svo rappara með sínar gulltennur og demantseyrnalokka á stærð við handbolta. ég held ég hafi aldrei séð jafn marga ghettogangstera á einum stað. fifty var hvergi að sjá en vinir hans úr g-einingunni héldu uppi merkjum fyrir hann með réttu framkomunni og múnderingum. strákurinn sem afgreiddi mig með poppið gerði það nánast blindandi því öll hans einbeiting og orka fór í að reyna að koma auga á fifty. dúllan. og dúllur, þetta voru allt eintómir englar, engir skotbardagar, engin slagsmál og ekkert spennandi. eftir allt saman þá var þetta lið jafn venjulegt og við hin. ég var eiginlega pínu svekkt.
Posted by audur at 12:36 FH | Comments (2792)
nóvember 07, 2005
ó boj
ég náði ákveðnum botni um þessa helgi í næringarfræðilegum skilningi. þó ég hafi ekki verið að leggja mig fram til að ná þessum áfanga þá eru bara örfáir sem gætu jafnað metin eða slegið mér við í sukki eftir þessi helgi. (að kamillu og heiði undanskyldum þar sem þær voru partners in crime)
í morgunmat á laugardaginn fékk ég mér íslenskt sælgæti. kamilla óskaði eftir að prófa dunkin donuts og þangað fórum við í hádeginu. svolítið svekkelsi að hitta engar löggur. í kvöldmat fórum við á dallas bbq (þar gátum við setið úti og notið sumarblíðunnar) og fengum risa hamborgara og frosna margarítu- texas size....
þar sem við vorum örlítið dasaðar eftir barhopp og tekílaskot í mjólkurglösum frá kvöldinu áður þá var pantaður greasy chinese í síðbúinn morgunverð í dag. svo var naslað á flögum, himnesku guacamólíi, íslensku og tyrknesku nammi og já, eiginlega öllu því sem ísskápurinn og nammiskápurinn hafði að geyma.
needless to say, stefnan er sett á ræktina þrisvar á dag til jóla. og auðvitað forever hehem.
Posted by audur at 12:46 FH | Comments (2792)
nóvember 05, 2005
sannast sagna
stundum rekst maður á hluti sem opna fyrir manni nýjar víddir eða les bara eina litla setningu sem dregur saman allar staðreyndirnar og gerir hlutina svo einfalda þegar þeir hafa virst svo flóknir og óskiljanlegir. ég elska svoleiðis. svo líka kemur það fyrir að setningar eru smíðaðar svo haganlega að engin leið er að draga merkingu þeirra né sannleiksgildi í efa.
kannski er ég 'so two years ago' en ég rakst fyrst á þetta slagorð á union square á mótmælum gegn stríðinu um daginn. þvílíkt snilldarverk. segir allt sem segja þarf ....
-BOMBING FOR PEACE IS LIKE FUCKING FOR VIRGINITY-
halelúja.
Posted by audur at 11:01 FH | Comments (2792)