október 31, 2005
skegg, skautar og skemmtilegheit
ég, heiður og halli fórum út í gær. við sögu komu skautar, skegg, margarítur, pólskir verkamenn, hárkollur, sveittur og illalyktandi barþjónn, súrar afgreiðslukonur og margt fleira skrýtið. (sjá nýjar myndir)
ég veit ekki með ykkur, en okkur fannst við óendanlega fyndin. það hafði samt sennilega meira að gera með fjölda drykkja sem við drukkum heldur en eitthvað annað.....
Posted by audur at 12:40 FH | Comments (2792)
október 27, 2005
grimmd og grænir skógar
á horni 16. strætis og 2. breiðgötu er lítill krúttlegur garður með gosbrunni í miðjunni. haustlitirnir eru rétt farnir að gera vart við sig en að mestu leyti er garðurinn ennþá grænn og sumarlegur. á mánudaginn var sat ég á bekk í þessum dásamlega garði og reyndi að vinna hljóðverkefni fyrir skólann. verkefnið fólst meðal annars í því sitja á ákveðnum stað í tuttugu mínútur og skrá niður öll hljóð sem ég heyrði með lokuð augun. (þetta er erfiðara en maður heldur. tuttugu mínútur eru ansi langur tími.) nema hvað þetta gekk sæmilega og ég skrifaði niður allt sem ég heyrði; umferð, fuglasöng (já já, voða rómantískt eitthvað), nið í gosbrunninum, fólk að tala o.s.fv.
þegar ég er búin að sitja á bekknum með lokuð augun í að mér fannst heila eilífð, þá heyri ég að hópur ungra stráka hefur safnast saman í garðinum og eru eitthvað að vesenast. svo allt í einu finnst mér eins og þeir séu allir að hlaupa í áttina til mín og var ekki alveg sama og opna augun. þá sé ég að þeir eru ekki að hlaupa í átt að mér heldur að strák sem var í sakleysi sínu á gangi rétt hjá mér. þeir hlupu upp að stráknum (sem að var að hlusta á tónlist og heyrði þá ekki koma hlaupandi) köstuðu eggi beint í andlitið á honum og hlupu svo tilbaka skellihlæjandi og hrósandi happi yfir vel heppnaðri framkvæmd. til að bæta gráu ofan á svart þá var einn gaurinn í hópnum með videocameru og tók allt saman upp. hann var svo að springa úr stælum þegar hinir vildu æstir sjá hvort atvikið hefði náðst á filmu. fórnarlambið hélt hins vegar göngu sinni bara áfram nánast eins og þetta væri hið eðlilegasta mál. ég sat þarna á bekknum svo hissa og svo sorgmædd að ég fékk tár í augun og illt í magann. og það er ekki bara af því ég er orðin gömul, væmin og skælin. þetta var bara svo ljótt.
ég sá hins vegar strax að ég hefði lítið í 30 gettó gaura sem allir hefðu getað verið aukaleikarar í menace II society myndinni og sagði því ekki neitt. ég veit líka ekki hvað ég hefði átt að segja, þetta var svo hræðilegt.
ég man eftir miskunnarleysi en ég man ekki eftir að neinn hafi fengið egg í andlitið þegar ég var í grunnskóla, ég man eftir að sumir voru alltaf valdir síðastir í lið í fótbolta og að enginn hafi farið í bekkjarpartýið til Lilju nema ég og Kamilla (og við fórum bara því mömmur okkar píndu okkur) en aldrei svona.... (ég er með genatískt lélegt minni og það má svosum vel vera að í minningunni séu hlíðaskólaárin ljúfari og vinalegri en þau í raun voru)
en atvikið í garðinum var hreinræktuð grimmd.
Posted by audur at 03:48 FH | Comments (2792)
október 25, 2005
sex and the suburbs
beðmálin eru endursýnd hérna öll kvöld kl 11 eins og heima að mér skilst. núna hins vegar eru þau ekki sýnd á kapalstöðinni hbo heldur bara á venjulegri stöð sem þarf ekki að borga aðgang að til að sjá. ég hef horft á nokkra þætti og var búin að taka eftir því að eitthvað var aðeins búið að ritstýra þáttunum. til dæmis var sagt freak í stað fuck og allskonar svoleiðis, upp á íslensku, í stað þess að sagt væri 'að klúðra einhverju' þá væri notað 'að verða á í messunni' - you get the picture... allavega, svo sá ég þáttinn þar sem carrie er að deita vaughn, sem á foreldrana sem carrie verður svo heilluð af, og á við dálítið 'speedy gonzales' vandamál að stríða (jájá, þarna sjáið þið líka hvað ég er líka mikil tepra) NEMA hvað, atriðið þar sem upp kemst um vandamál vaughn er nánast klippt burt. atriðið er það stutt að nema maður hafi séð þáttinn áður þá ekki möguleiki að vita hvernig í pottinn er búið. aðeins of mikil ritskoðun fyrir minn smekk þó teprulegur sé.
svo hef ég tekið eftir að það eru hvorki upphafsstef né kreditlistar fyrir og eftir sjónvarpsþættina. allt er klippt úr svo hægt sé að troða fleiri auglýsingum. pínu svekkjandi, það er alltaf svolítil stemning að heyra byrjunarstefin,svona 'úúú jess þetta er að byrja....'
núna ef ég er ekki einbeitt að fylgjast með auglýsingunum á undan þá er þetta byrjað (og búið) án þess að ég fái nokkuð við ráðið. hérna fær fólk sennilega ekki skemmtilegt deja vu við að heyra hin ýmsu kynningarlög - það hefur aldrei heyrt þau!
bara það að heyra 'nýjustu tækni og vísindi' stefið, matlock, derrick, dallas, beverly hills 90210, ER...... ahh good times.
Posted by audur at 04:31 FH | Comments (2792)
október 19, 2005
martha nær tökum
já undur og stórmerki hafa átt sér stað. ég er farin að taka til eftir mig. ég veit að mamma og pabbi muna ekki trúa þessu en í alvöru þá er ég hætt að drasla til. (ókei ég reyndar dreifi ennþá fötum útum allt þegar ég er að flýta mér að reyna að finna eitthvað til að fara í en það er bara eðlilegt!) sko málið er að ég er svo hugfanginn af litlu íbúðinni minni að ég tek allt til alveg um leið. ég bý um rúmið á morgnana meira að segja. svo finnst mér geðveikt gaman að þvo þvott. í húsinu mínu eru nefnilega svona verksmiðjuþvottavélar og þurrkarar sem taka svona 100kg af þvotti og þvo á ljóshraða. ég safnaði óhreinu taui í marga marga daga (eða þar til allar brækur voru búnar og ég á svona milljón) og ég gat með því að setja í báðar vélarnar í einu þvegið öll handklæðin mín, rúmfötin, fullt af gallabuxum og allskonar og þurrkað á rúmlega klukkutíma. þvílík hamingja. svo vandaði ég mig sérsaklega að brjóta saman og setja upp í hillu. ólýsanleg sælutilfinning. (hef reyndar lúmskt á tilfinningunni að gleðin yfir tiltekt og þvotti muni ekki endast að eilífu)
svo sá ég einhvers staðar ráð frá mörthu stewart hvernig opna megi krukkur án vandræða (fara í uppþvottahanska og þá er það ekkert mál) og það virkaði ó svo vel. ég varð líka fáránlega glöð yfir því. með þessu áframhaldi fer ég kannski bráðum að kaupa bækurnar hennar, fylgjast með þættinum hennar í sjónvarpinu og búa til mitt eigið potpourri. nei ókei djók, ekki alveg en kannski lumar hún á hugmyndum um pakkaskreytingar. fyi þá er ég einlægur pakkaskreytingaáhugamaður, ég elska að gera fallega pakka og hefði sennilega átt að taka það fram í 'klukkinu' mínu. ég er til dæmis búin að finna nokkrar búðir sem eru með ógrynnin öll af girnilegu skreytingadóti og hlakka geðveikt til að gera jólapakkana.
jebb spes, i know.
Posted by audur at 06:57 FH | Comments (2792)
október 17, 2005
a&tj, u2 og strawberry fields
u2 tónleikarnir voru æði. ég á samt bara eina u2 plötu, best of 1980-1990, og ari var næstum hættur við að bjóða mér með á tónleikana þegar hann komst að því að ég var ekki með neitt með u2 í itunes. ég er mjög glöð að hann ákvað að taka mig með þrátt fyrir það. bono er svalari en allt. og sjúklega flinkur að syngja. tónleikagestir í madison square garden voru mjög heimilislegir, kveiktu bara í jónunum sínum eins og ekkert væri og sungu með. svolítil hróarskeldustemning eiginlega. svo langaði mig ó svo mikið að vera pían sem bono tók upp á svið og faðmaði og knúsaði meðan hann söng 'with or without you'. ara var alveg sama, því ég held hann hafi líka langað pínu í knús frá bono.
a&tj tónleikarnir voru líka skemmtilegir. lou reed var með frábæra og látalausa og gæsahúðar innkomu í lokalaginu en það sama verður ekki sagt um jimmy scott, söngvara sem kom of oft við sögu tónleikanna að mínu mati. spes náungi og speeeees rödd.
svo fórum við með halla á 'gay jeopardy' um daginn. míkrafónarnir biluðu þannig að leikurinn var flautaður af en það var samt gaman og fyndið. mér finnst samt leiðinlegt að 'strawberry fields' hafi fengið nýja og ógleymanlega vonda merkingu eftir það kvöld. það er ekki lengur fallegur staður í central park eða bítlarnir og john lennon sem koma upp í hugann heldur 4 rauðhærðir karlmenn að bera saman skapahár hlæjandi og öskrandi: 'have you ever seen strawberry fields?'
en í annað.... nýjar myndir.
Posted by audur at 03:31 FH | Comments (2792)
október 13, 2005
smá mont
ég fékk b+ fyrir mína fyrstu ritgerð hér í borg. ritgerðin mín fjallaði um eina ræðu fidel castro og kennarinn hafði meðal annars þetta að segja: "excellent choice of speech and some fine observations" jei. svo má ég endurskrifa ritgerðina og endurbæta og skila aftur eins oft og ég vil og þar til ég fæ þá einkunn sem ég vil. mjög sniðugt, ég vil fá a+ takk.
ég var búin að hafa svo miklar áhyggjur af þessari ritgerð. mér fannst enskan mín vera svo einföld og barnaleg og ég bara ekki hafa skrifað neitt af viti. (að sjálfsögðu skrifaði ég ritgerðina að mestu leyti kvöldið áður því mér er lífsins ómögulegt að vera skipulögð eða praktísk þegar kemur að svona hlutum) en já, ýkt gaman. næsta ritgerð á að fjalla um samtök eða herferð, hvernig þau urðu til, hverjar eru þeirra skoðanir, hvaða samskiptamáti er notaður og hver eru sérkennin. mjög spennandi. ég er að spá í að fjalla kannski um hamas samtökin, fatah eða jafnvel rote arme fraktion. kennaranum fannst fidel vera hressari en ég átti von á, kannski mun hún líka fíla ursulu meinhof...
svo er íbúðin litla að verða svo ofsa fín. hingað er komið skrifborð og ég þarf því ekki lengur að eyðileggja veika bakið mitt með því að borða í rúminu, senda tölvupóst í rúminu, læra í rúminu, lesa í rúminu, horfa á sjónvarpið í rúminu (you get the picture) og svo kemur allskyns fleira fallegt á næstu dögum. kannski monta ég mig líka af því og set myndir af fínu fínu íbúðinni hingað inn.
á morgun eru svo tónleikar með anthony and the johnsons í carnegie hall og á föstudaginn u2 í madison square. ó svo gaman. fyrir utan rigninguna reyndar. hún er mjög vonlaus. mig vantar sárlega gúmmítútturnar mínar að heiman.
Posted by audur at 05:30 FH | Comments (2792)
október 12, 2005
harðsperrur og haust
hérna er orðið kalt eða allavega kaldara. rigning og kaldur vindur. samt eiginlega bara gott, enginn sviti og núna get ég notað venjulegu fötin sem ég kom með hingað og var farin að sakna.
svo til þess að ég myndi áfram passa í fötin mín þá gerðist ég meðlimur í heilsuræktarstöð hérna í hverfinu mínu. sem nýr meðlimur fékk ég 1klst með einkaþjálfara og þó ég væri búin að vera í work-out pásu frá því í ágúst þá fannst mér ekkert athugavert við það að fara strax í fyrsta skiptið til þjálfarans. ég taldi mér trú um að það væri einmitt sniðugt því þá myndi ég fá góða rútínu til að fylgja og komast almennilega inn í hlutina. hehemm little did i know... ég og 24ára einkaþjálfarinn spjölluðum smá og komust að því að báðar hefðum við æft fimleika í fjöldamörg ár. hefði ég bara vitað hvað þessi upplýsingaskipti áttu eftir að koma mér í koll. hún sagði nefnilega í þúsundustu armbeygjunni (þegar ég var við það að líða útaf) "having been a gymnast you have a higher tolerance for pain" ... stuttu seinna þá hélt ég varla jafnvægi, sá ekki lengur skýrt og var alveg að fara að gubba. strax á leiðinni heim var ég farin að finna fyrir harðsperrum.
í dag er fyrsti dagurinn sem ég get gengið upp og niður stiga, ég gat ekki hreyft mig í 4 daga. ég hef aldrei fengið svona strengi áður. ég átti í mestu erfiðleikum að setjast á klósettið, klæða mig, komast í og úr rúminu og fara í subwayið. þar nefnilega eru svo margar tröppur og ég var alltaf svo lengi og til að gera illt verra þá eru newyork búar ekki þeir þolinmóðustu. allavega, núna er allt orðið betra sem betur fer.
Posted by audur at 04:47 EH | Comments (2917)
október 07, 2005
cruise your daddy?
þetta er ein fyrirsögnin í slúðurblöðunum um óléttu katie holmes. snillingar fólkið sem býr allar þessar fyrirsagnir og alla þessa orðaleiki til..... bennifer, tomkat og allskonar, og svo núna 'cruise your daddy' jiminn.
Posted by audur at 06:59 FH | Comments (2953)
pink lady
orðið á götunni er að skólinn minn sé vinstrimannaskóli. reyndar hef ég líka komist að því að newyork er algjör vinstriborg. ég á enn eftir að hitta repúblíkana hérna. og enn eftir að hitta manneskju sem styður stríðið í írak. ég er í tíma í skólanum sem heitir political communications og er með fólki í bekk sem er handtekið um helgar í mótmælum á union square, gefur út neðanjarðar áróðursblöð og skipuleggur kröfugöngur til washington. í fyrsta tímanum átti fólk að kynna sig og einn sagði frá því að hann hefði ekki getað sofið né borðað í 3 vikur eftir að ljóst var að bush hefði náð endurkjöri fyrir ári síðan.
í síðasta tímariti newyork times var birt skoðanakönnun. mjög skemmtileg könnun. þar kom meðal annars fram að 42% eru þeirrar skoðunar að borgarstjóri ny, michael bloomberg, sé ekki "a republican at heart", aðeins 12% "generally think of themselves as republican", 28% myndu aðeins flytja í úthverfin "under penalty of death", 57% myndu kjósa hillary í forsetakosningunum 2008 og 38% giuliani.
á íslandi er stundum talað um að bláa hendin hafi ítök í mogganum, í ameríku hinsvegar er talað um the newyork times sem the pink lady því það sé svo "liberal" blað. well, hmm.... ég veit það nú ekki en er samt áskrifandi.
svo var að byrja nýr þáttur á abc sjónvarpsstöðinni, 'commander in chief', sem fjallar um fyrsta kvenforseta bandaríkjanna. mig grunar að verið sé að venja bandarísku þjóðina við þá hugmynd að kona geti verið forsetinn þeirra og ryðja brautina fyrir hillary... (þið vitið, bandarískur almenningur sér að kona getur það í sjónvarpinu og sannfærist þá að kona geti verið forsetinn þeirra í alvörunni)
svo eru hótanir um sprengjur í subwayinu. enn sem komið er virðist engin kippa sér upp við þetta. ég varð ekki vör við neitt og frétti ekki einu sinni af þessu fyrr en ég kom heim seint í kvöld og kveikti á sjónvarpinu og fór á íslensku fréttasíðurnar. héðan er einhvern veginn miklu erfiðara að fylgjast með því sem er í gangi, hvort sem það er hér á manhattan, madríd eða á miklubrautinni. ég hefði aldrei trúað þessu. maður þarf virkilega að hafa fyrir því að fylgjast með.
og já, síminn minn hér: 646 270 1397. endilega sendið mér email með númerunum ykkar, töskukrakkþjófurinn er nefnilega með alla símaskrána mína...
Posted by audur at 05:30 FH | Comments (4202)
október 01, 2005
myndir
með hjálp góðra aðila eru nú komnar nokkrar myndir úr flóamarkaðskveðjupartýinu mínu hingað á síðuna. ég kann ekki að gera link hérna í textanum þannig ef ykkur langar að skoða þá er bara að smella á 'myndir' hérna fyrir ofan og fallegu vinir mínir munu birtast ykkur á skjánum. enjoy.
Posted by audur at 08:23 EH | Comments (2803)