september 29, 2005

jen-brad-angelina sápan heldur áfram

sá forsíðuna á einhverju slúðurblaðanna í morgun: "ANGELINA LOOKS PREGNANT" var fyrirsögnin og andlitsmynd af henni þar sem hún var alveg jafn óþolandi falleg og alltaf. jebb. greinilega mikil rannsóknarvinna þarna að baki.

Posted by audur at 09:06 EH | Comments (2794)

september 28, 2005

bloggáskorun

sé það núna að síðasta færsla var á köflum eiginlega kannski pínu tilgerðarleg. vinsamlega afsakið það.
en í annað. ég "er'ann" samkvæmt bloggheiminum. hér kemur því upptalning á 5 skrýtnum og ómerkilegum hlutum um mig:

númereitt) ég skrifa og jafnvel föndra milljón jólakort á hverju ári sem fara svo aldrei í póst.

númertvö) ég er nánast aldrei í samstæðum nærfötum (gerist einungis í undantekningartilfellum þar sem óskað hefur verið eftir því sérstaklega...)

númerþrjú) ég er alveg ömurlega léleg og metnaðarlaus þegar kemur að því að taka til og þrífa. er samt pínu flink að brjóta saman.

númerfjögur) mér finnst ég alveg einstaklega óheppin með tær. mínar eru alveg of ómögulegar.

númerfimm) mig vantaði baðmottu og núna á ég voða fallega og fína hvíta baðmottu. ég hins vegar passa mig að stíga helst aldrei á hana svo hún haldist falleg og fín og hvít. (það má samt alveg þvo hana bara í þvottavél og allt... en æi, þetta er einhver árátta. ég er nefnilega með nokkrar þegar kemur
að baðherbergjum. til dæmis verður klósettrúllan alltaf að snúa fram)

þannig var nú þetta.
ég klukka elvudögg :)

Posted by audur at 03:49 EH | Comments (2797)

september 27, 2005

af meindýrum, mér og gasi

það er mánuður síðan ég kom. finnst ég nýkomin.
veðrið er orðið miklu betra, orðið kaldara og minni raki. sem betur fer. en kannski ætti ég ekkert að vera að hrósa happi yfir því þar sem sennilega verður orðið ískalt eftir nokkrar vikur. oh well.
ég fór í bíó um daginn nema ég átti erfitt með að fylgjast með myndinni fyrir músagangi. já já, þá voru 3 litlar mýs í salnum hlaupandi fram og tilbaka, sennilega að smjatta á poppkorni og súkkulaðirúsínum. ég var ekki alveg að fíla þetta og að það virtist enginn annar í bíóinu kippa sér upp við þetta.
svo fór ég á skemmtilegan hamborgarastað í hverfinu mínu (staðurinn er undir berum himni og í dúllulegum almenningsgarði) og sá rottur. mér fannst það ekkert spes. hamborgarinn var samt góður.
svo eru kakkalakkar líka ekkert spes. sá nokkra í subway-num og einn bara á rölti á union square.
ég var í the daily mail um daginn. ég var í spurningu dagsins. ég var spurð hvað mér fyndist um þá hugmynd yfirvalda að fjölga almenningsklósettum í borginni og/eða hvort ég myndi geta hugsað mér að nota slíka kamra. mitt svar "eh nei".
svo var ég stoppuð á madison ave af hópi stúdenta í ratleik. fyrst báðu þau mig um að taka mynd af sér og það var ekkert mál. en svo kom í ljós að þau áttu að taka mynd af "a fashionable new yorker dressed in black" og tóku mynd af mér. það var nærri 30 stiga hiti úti og ég fattaði ekki að ég væri klædd í svart frá toppi til táar fyrr en þau komu að tali við mig. spes.
svo hef ég forðast það að hitta nágranna mína. veit ekki alveg af hverju. ég þvæ t.d þvottinn minn þegar ég veit að fáir eru á ferli og bíð með að fara út ef ég heyri í einhverjum frammi á gangi. svo var ég að ræða þessa félagsfælni mína þegar einhver benti mér á að ég væri bara búin að tileinka mér hið rétta newyork attitude. hmmm. ekki viss.
ég var svo vakin kl 08.12 í morgun þegar húsvörðurinn bankaði upp á hjá mér. þá var hann að athuga hvort ég færi flutt inn og hvort allt væri ekki í lagi. ég var eins mygluð og hugsast getur og litla íbúðin mín ekki eins fín og ég hefði viljað (sofnaði nefnilega út frá breakfast at tiffany's í gærkvöldi með allar skólabækurnar upp í rúmi og fötin mín á gólfinu) en stökk á fætur og opnaði fyrir manninum. þá fann hann lykt af gasi í íbúðinni minni þó hann stæði bara rétt í dyragættinni. þá hafði slökknað á einhverjum loga sem á að vera alltaf í gangi því annars lekur gas. og það er ekki sniðugt. ég var ekkert að átta mig á því að skrýtna lyktin sem var alltaf í íbúðinni var gaslykt, ég bara keypti allskonar ilmkertadót og svoleiðis og dreifði út um alla íbúð!!! já já. en núna er allt komið í lag. alltaf lærir maður eitthvað nýtt...

Posted by audur at 03:32 EH | Comments (2799)

september 24, 2005

af starbucks

ég var á starbucks á union square. ég er enginn sérstakur aðdáandi starbucks svo það komi fram. ég drekk varla kaffi og svo eiga þeir aldrei neitt til, alltaf allt búið plús að vera eiginlega bara dýr búlla. en hins vegar er þráðlaust net þar. allavega, við ari vorum þarna, ætluðum að tékka á nokkrum hlutum á netinu og fá okkur morgunmat. staðurinn var þéttsetinn og við fengum bara sæti á barstólum við gluggann. á meðan ari beið eftir kaffinu sínu þá tók ég eftir að það var einn gaur að fylgjast með mér. hann var að tala í síma, gekk fram og tilbaka en var með augun á mér. mér fannst hann strax mjög grunsamlegur og ég hafði allan varann á, hafði töskuna undir handarkrikanum og færði tölvuna nær mér. ég var aðallega með hugann við tölvuna enda fín apple powerbook tölva sem hefði geta verið krakkgjafi hans í ansi hreint langan tíma. svo rétt augnabliki seinna tek ég eftir að náunginn er farinn. og, á einhvern yfirnáttúrulegan hátt, með töskuna mína. ég kalla í verslunarstjórann og spyr um eftirlitsmyndavélar. hann segir mér að þeim sé bara beint að afgreiðslukössunum og því sé ekkert á græða á þeim. hins vegar séu löggur á staðnum. ókei.... þá voru 3 löggur að koma inn á staðinn í þeim tilgangi að ná þjófi sem setið hafði um staðinn og stolið töskum af viðskiptum nokkrum sinnum í viku í margar vikur. löggurnar voru með plattösku sem þær ætluðu að freista þjófsins með og ná að grípa hann glóðvolgan. -bara að löggurnar hefðu verið komnar 3 mínútum fyrr..... en þær tóku þessu mjög alvarlega, hlupu út og leituðu hans. ég gat nefnilega gefið þeim mjög góða lýsingu á honum þar sem ég hafði sjálf verið að fylgjast með honum fylgjast með mér. því miður fannst hann hvergi. ég reyndi að hringja í símann minn og vonaðist svo heitt og innilega til að þjófurinn væri pínu vitlaus og myndi svara. ég ætlaði þá að freista hans og biðja um skipti á töskunni og peningum og vera svo með lögguna í felum. ég var alveg komin á flug með mini löggudrama í bígerð. því miður sá ég töskuna aldrei meir né allt sem í henni var. og þó ég hafi verið með allskonar fallega hluti í töskunni, sbr. nýja fína símann minn, prada sólgleraugun sem voru keypt á ítalíu, allt make-up-ið mitt, franska ilmvatnið, öll kortin mín og skilríki og rúmlega 100 dollarar þá þótti mér allra verst að hafa tapað hússlyklunum (vegabréfið var sem betur í íbúðinni en kom að litlum notum læst inni). við ari nefnilega stálumst til að gista á lítilli vindsæng í íbúðinni þó ég væri ekki samþykktur íbúi hússins ennþá. við vorum því með allt dótið okkar þar inni og enga lykla og næstu lyklar í margra klukkustunda fjarlægð í upstate new york. þar að auki átti ég engin símanúmer hjá neinum lengur og því meiri háttar vesen að hafa uppi á húseigandanum til dæmis. en jæja, þetta bjargaðist eftir margra daga vesen. ég komst inn í íbúðina að lokum þrátt fyrir ósamvinnuþýða húseigendur (sem ég komst svo síðar að að eru ísraelskir gyðingar.... hmmm) og fékk kortin mín með dhl viku seinna. (já "hraðþjónusta" dhl gekk ekki hraðar fyrir sig en svo)
smá viðauki í sambandi við húseigendurna, hjónin eli og sophia. beverly, vinkona mömmu og pabba, hjálpaði mér fullt í þessu basli öllu saman. meðal annars talaði hún við þau nokkrum sinnum í síma. eitt skiptið þegar eli var ósveigjanlegur og óhjálpsamur þá hækkaði beverly málróminn við hann og sagði að hann gæti ekki gert mér þetta. (þá var eli meðal annars búinn að senda mig útum allar trissur eftir lyklum hérna inni á manhattan þegar kom svo í ljós að það voru engir lyklar inni á manhattan eftir allt saman og hann vissi það vel) - hann skellti á! svo eftir að mestu lætin voru yfirstaðin og ég komin inn í íbúðina þá hringdi hann í mig. sagði mér að hann vildi aldrei tala við beverly framar, að hann ætti bara í viðskiptum við mig, að beverly ætti við vandamál að stríða og að "she was mean to us"
jebb. svona var nú þessi saga.

Posted by audur at 04:31 EH | Comments (2796)

september 19, 2005

frá 101 rvk til 10010 nyc

halló allir saman. undanfarnar 2 vikur hafa verið aðeins of dramatískar fyrir minn smekk. samt of löng og leiðinleg saga til að rekja hér því núna er allt að komast í eðlilegt horf. ég komin með fastan samastað, búin að fá kortin mín aftur eftir starbucks atvikið og svo keypti ég nýjan síma í dag. ég má líka núna segja opinberlega að ég eigi heima þar sem ég á heima. ólýsanlega gott. reyndar sef ég bara á vindsæng og það eru engin húsgögn í íbúðinni (ok kannski eitt ef kitchen-aid blandari telst með) en ótrúlega ljúft engu að síður. íbúðin er á frábærum stað. ég er ekki nema nokkrar mínútur að labba í skólann. svo er gatan mín sennilega öruggasta gatan á manhattan. ég deili götunni nefnilega með nunnuklaustri, listaskóla (school of visual art) og lögreglustöð (the 13th precinct sem hefur ábyggilega verið í milljón löggu- og lögfræðingaþáttum en hún leit ansi kunnuglega út þegar ég þurfti að fara þangað um daginn og það verður stutt að fara þegar ég verð kölluð inn til þess að skoða mugshots á næstu dögum.....)
svo gerðist það að sjálfstæðisflokkurinn varð á vegi mínum um daginn hérna í nyc. ég var í sakleysi mínu að skoða í búðum og var í einni sem heitir american eagle outfitters. ekki í frásögur færandi (og alveg súper venjuleg búlla) nema ég var að spá í að kaupa nokkrar nærbuxur. þegar ég var í röðinni við kassann þá tók ég eftir merkinu var á þeim - sjálfstæðisflokksörninn!!! nei nei þá var hver einasta flík, frá gallabuxum til nærbuxna með sjálfstæðisflokkserninum ísaumuðum. needless to say þá var ekki fjárfest í neinu í þessari búð. ég var samt að spá í að láta kannski sus-arana vita.... þeir geta keypt sér samstæða pólóboli og brækur, allt með merki flokksins. kannski verður american eagle outfitters styrktaraðili kosningabaráttunnar hjá flokknum í vor, hver veit. allir saman í khaki buxum og gallaskyrtum merktum flokknum.
hérna eiga allir hunda. allskonar hunda. rétt hjá skólanum mínum er gæludýrabúð með sætustu dúlluhundum í glugganum sem ég hef séð. ég fæ krúttsting í magann í hvert skipti sem ég geng framhjá. svo sá ég konu um daginn að labba með hundinn sinn nema hvað þessi kona var ekki með hundinn sinn í bandi heldur var hún með hann í magapoka framan á sér. þar sat?!? hundurinn með fjóra litla fætur standandi út í loftið framan á konunni. þetta er alveg í topp 5 yfir undarlega hluti sem ég hef séð hérna. nokkrum dögum seinna sá ég svo aðra konu með hundinn sinn í hundakerru. kerru sem leit út alveg eins og venjulega barnakerra (og hefur pottþétt kostað það sama ef ekki meira) nema hvað var sérstaklega fyrir hunda. alveg stórfurðulegt.
en já, nóg í bili. ást og sakn.

e.s heimilisfangið mitt ef þið viljið senda mér gamaldags bréf eða koma óvænt í heimsókn...
A. Asgeirsdottir
207 East 21st Street apt. 4G
New York, NY 10010
U.S.A

Posted by audur at 09:30 EH | Comments (2829)

september 03, 2005

brad who?

öll slúðurblöðin eru full af umfjöllunum um skilnað brad pitt og jennifer aniston og svo samband brad og angelinu. jennifer aniston hefur mikla samúð hérna. til dæmis var að byrja á einni sjóvarpsstöðinni "brad who" vika þar sem bara verða sýndar myndir með jennifer og myndir tengdar svona aðstæðum. svo eru leiðbeiningar hvernig maður á að lifa af ástarsorg auglýstar (þetta klassíska: borða mikinn ís og tala endalaust mikið um skilnaðinn við vinina o.s.fv.) svo enda auglýsingarnar á "we're rooting for you jen" og á niðrandi orðum um "that darkhaired tattoed b****"
mér finnst þetta mjög fyndið. brjálaðar áhyggjur af sálartetri jennifer aniston en alveg sama um svo ótal margt annað miklu mikilvægara og merkilegra.
ég spjallaði svo við nokkra innfædda um daginn og komst að því að ég hafði ferðast víðar um bandaríkin en þeir. ókei, eitt að 60% bandaríkjamanna eigi ekki vegabréf en að þeir hafi ekki einu sinni áhuga á að ferðast innanlands er með öllu óskiljanlegt. reyndar er svo margt hérna alveg óskiljanlegt.... gaman- en óskiljanlegt.

Posted by audur at 02:20 FH | Comments (5494)

september 02, 2005

amríka

ég sá að jólabæklingurinn frá JCPenney kom út í gær. og á mcdonalds hérna í fjármálahverfinu er alltaf live dinnermúsík. jájá þar var kona að spila á risa flygil fyrir alla sveittu fjármálaguttana sem voru að úða í sig - nei ekki fínni steik og bernaise sósu, heldur big mac hamborgara!

Posted by audur at 02:52 EH | Comments (2795)

september 01, 2005

jei

íbúðin er mín. jei. eða sko eiginlega. ég var valin til þess að sækja um (endalaus skriffinnska í ameríku) en íbúðin er svokölluð co-op sem þýðir að allir sem búa í húsinu verða að samþykkja mig sem leigjanda í húsinu. ég er endalaust glöð. ég nefnilega skoðaði nokkrar aðrar íbúðir þar á meðal eina í gær sem var svona 12fm2 í mesta lagi og með lofthæð 1,80 m!!! ég skildi ekki alveg hvað gaurinn, sem var að sýna íbúðina, var að meina þegar hann sagði við mig strax þegar ég kom "you're tall" því ég er ekkert sérstaklega hávaxin, bara venjuleg. en, well, taglið sem ég var með í hárinu straukst við loftið á íbúðinni. einhverjum hafði greinilega þótt það góð hugmynd að byggja svefnloft fyrir tvo og þar með minnka lofthæðina all hressilega. samt... kannski er þetta fín íbúð fyrir dverga eða litlar sætar japanskar dúllur. (svefnloftið minnti mig á hótelið sem píurnar í A.N.T.M í fyrra gistu á í Japan, svona líkhússvefnstæði þið vitið) en allavega liðið vildi fá 1400 dollara fyrir þetta drasl. em.. takk en nei takk.

en já, heimilisfangið mitt verður því að óbreyttu : 207 E 21st St New York, NY 10010 (þið getið googlað þetta á maps.google.com og ýtt á satellite og þá séð þetta með eigin augum, rosa sniðugt sko)

en talandi um undarlegar hugmyndir, hverjum þótti það sniðugt að byggja heila borg fyrir neðan sjávarmál? lærði enginn lagið "á sandi byggði heimskur maður hús..." hérna í ameríku? en ok samt alveg ömurlegt ástand eftir Katrínu miklu. kannski myndu hús á íslandi líka leggjast saman í 70 m/s vindi. held samt að enginn myndi labba í dressman og stela öllum khaki buxunum og köflóttu skyrtunum. ég heyrði í bush í "good morning america". hann var að reyna að útskýra og afsaka það af hverju hjálpin væri svona lengi að berast (vitað var að fellibylurinn væri á leiðinni í ansi langan tíma, samt var ekki búið að skipuleggja hjálparstörf að neinu ráði plús það að flest allir í hernum og þjóðvarðliðinu eru í írak í "fighting the war against terror" sem enginn skilur og þess vegna er enginn til þess að koma fórnarlömbunum til hjálpar) augljóslega gekk það ekkert sérstaklega vel hjá honum. svo vill hann ekki þiggja neina utanaðkomandi hjálp (frá öðrum löndum eða erlendum hjálparstofnunum) "we are america, we can do it ourselves" - spes gæi.

hitinn hérna og SVITINN, guð minn góður. það var 28 stiga hiti klukkan níu í gærkvöldi og svona 1000% raki. svitinn rann niður lappirnar (í alvöru) og ég varð að flýja inn í búðirnar. reyndar varð ég að flýja þær líka því þær eru ískaldar og mjög óhollar fyrir veskið.

Posted by audur at 03:20 EH | Comments (3571)