ágúst 29, 2005

útlensk í útlöndum

það er eins gott að ég sé flutt til útlanda, þar á ég víst heima- amk samkvæmt öllum þeim sem vinna í leifsstöð. þeim fannst ég vera útlensk. í gegnumlýsingunni þá var ég ávörpuð á ensku, í fríhöfninni þar sem ég var að kaupa bók á ÍSLENSKU fyrir síðustu íslensku seðlana mína var mér sagt hvað ég ætti að borga mikið á ensku og í vegabréfaskoðuninni var ég spurð " and where are you going" þá fannst mér þetta orðið of undarlegt eitthvað og svaraði hátt og snjallt á bjarkarensku, " æm góíng tú njú jorrrrk" og rétti þeim íslenska vegabréfið mitt.
þeim fannst ég voða fyndin, en voru samt meira vandræðalegir en eitthvað annað. sögðu bara, "æi það er svo margir útlendingar hérna heh"

en allavega, ég komst á leiðarenda. fékk dásamlegt kampavín að gjöf í vélinni sem deyfði hávaðann frá þremur þreyttum og pirruðum börnum nokkrum röðum framar. takk einargeir og sabba.

núna er ég á 22.hæð í voða fínni íbúð sem brynja yndislega lánaði mér án þess að hafa nokkru sinni séð mig eða hitt. endalaust takk fyrir það.
íbúðaleitin gengur sæmilega bara, fæ vonandi að vita á morgun um eina sem ég er búin að skoða og leist vel á.
fór í skólann líka í dag en það tók 2 klst að skila inn einu eyðublaði. mjög hressandi. eða bíddu... nei. en ég hlakka samt mjög til að byrja.
veðrið er gott, reyndar alveg sjúklegur raki sem þýðir að ég er eins og sveittur grís allan daginn. mér finnst ég aldrei sjá neinn annan sem er sveittur. skil það ekki. kannski hættir þessi raki að hafa áhrif á mann eftir einhvern tíma, ég vona það. það er eitthvað mjöög ósmart við það að vera öll sveitt í framan og með hárið klístrað við ennið. samt held ég eiginlega betra en rok og rigning frá öllum áttum ....

Posted by audur at 29.08.05 22:57

Comments

halló baby gott hjá þér að vera sveitt bara og svona, þú ert alltaf falleg sveitt eða ekki!

Posted by: Stefán Svan Aðalheiðarson at 30.08.05 00:08

hæ, vonandi gengur allt vel og vertu nú dugleg að láta okkur vita hvernig gengur hjá þér, þeas með því að skrifa á síðuna þína. fáðu þér svo NY símanúmer og láttu mig vita svo hægt sé að heyra í þér

Posted by: Óli T at 30.08.05 02:56

ps. mér finnst þú ekkert útlensk

Posted by: Óli T at 30.08.05 02:56

Jahá - vá hvað það kemur mér ekki á óvart með eyðublöðin og vesenið.. skil ekki af hverju´allt er svona flókið í útlöndum. En hey.. er sammála Stefáni, þú ert alltaf smart og bíddu bara þar til Halli kemur út. Ég gt svona nánast fullyrt að hann verði sveittari en þú ;)
vonandi færðu íbúðina *krossa fingur*

Posted by: kolka at 30.08.05 10:53

hehehe halli verður pottþétt sveittari en þú

Posted by: Óli T at 30.08.05 14:42

"HAHAHAHAHAHA"

Ég vissi ekki að ég væri þekktur (behind my back) sem sveitti gaurinn. Öllu kemst maður að á internetinu.

Hinsvegar púðra ég mig allan með barnapúðri áður en ég yfirgef húsið og er því alltaf þurr sem...eitthvað þurrt.

Hey, vonandi er lyfta í húsinu. Annars kem ég ekki í heimsókn (verð svo sveittur)...

Posted by: Halli at 30.08.05 19:31

Kannski bara varparu einhverjum heimsborgaralegum straumum til fólks, eða...varstu í cintamani úlpu? Nei varla...annars myndi ég nú bara vera glöð að vera þó alla vega ávörpuð á ensku, á öllum mínum ferðalögum er ég alltaf ávörpuð á ÞÝSKU

Posted by: kamilla at 30.08.05 20:07

HÆ hæ gott að það gengur vel hjá þér.. sendi þér góða strauma og vona að þú fáir þessa íbúð. Gott að þeir voru kátir í vegabréfseftirlitinu.. þeir eru það nebblega ekki alltaf ;-)
Hafðu það gott
KV Þórný

Posted by: Þórný at 30.08.05 21:11

ojjjj hvað ég öfunda þig.....

Posted by: katrin amni at 30.08.05 23:04

gaman gaman að heyra frá þér strax! vona að allt haldi áfram að ganga vel og að það taki ekki alltaf 2 tíma að skila inn eyðublöðum.... súrt. svo hlakka ég líka til að heyra meira með íbúðina -krossa fingur x

hugsa að þú hafir bara verið kominn í svo svakalega mikinn cosmopolitana gír þegar þú fórst í leifsstöð að þeir hafa ekki þorað öður en að ávarpa þig á ensku ;o)

ciao bella

Posted by: ankri at 01.09.05 00:52

Gaman að heyra frá þér :) Krossa fingur fyrir íbúðarmál og auðveldari sveittum skriffinnsku-skólamálum.

LUW

Posted by: Þorbjörg at 01.09.05 14:55