ágúst 29, 2005
útlensk í útlöndum
það er eins gott að ég sé flutt til útlanda, þar á ég víst heima- amk samkvæmt öllum þeim sem vinna í leifsstöð. þeim fannst ég vera útlensk. í gegnumlýsingunni þá var ég ávörpuð á ensku, í fríhöfninni þar sem ég var að kaupa bók á ÍSLENSKU fyrir síðustu íslensku seðlana mína var mér sagt hvað ég ætti að borga mikið á ensku og í vegabréfaskoðuninni var ég spurð " and where are you going" þá fannst mér þetta orðið of undarlegt eitthvað og svaraði hátt og snjallt á bjarkarensku, " æm góíng tú njú jorrrrk" og rétti þeim íslenska vegabréfið mitt.
þeim fannst ég voða fyndin, en voru samt meira vandræðalegir en eitthvað annað. sögðu bara, "æi það er svo margir útlendingar hérna heh"
en allavega, ég komst á leiðarenda. fékk dásamlegt kampavín að gjöf í vélinni sem deyfði hávaðann frá þremur þreyttum og pirruðum börnum nokkrum röðum framar. takk einargeir og sabba.
núna er ég á 22.hæð í voða fínni íbúð sem brynja yndislega lánaði mér án þess að hafa nokkru sinni séð mig eða hitt. endalaust takk fyrir það.
íbúðaleitin gengur sæmilega bara, fæ vonandi að vita á morgun um eina sem ég er búin að skoða og leist vel á.
fór í skólann líka í dag en það tók 2 klst að skila inn einu eyðublaði. mjög hressandi. eða bíddu... nei. en ég hlakka samt mjög til að byrja.
veðrið er gott, reyndar alveg sjúklegur raki sem þýðir að ég er eins og sveittur grís allan daginn. mér finnst ég aldrei sjá neinn annan sem er sveittur. skil það ekki. kannski hættir þessi raki að hafa áhrif á mann eftir einhvern tíma, ég vona það. það er eitthvað mjöög ósmart við það að vera öll sveitt í framan og með hárið klístrað við ennið. samt held ég eiginlega betra en rok og rigning frá öllum áttum ....
Posted by audur at 10:57 EH | Comments (2803)
ágúst 24, 2005
hæb
bara smá að prufa. it's official - ég er orðin bloggari. ætla að reyna að vera voða sniðug og skemmtileg og svoleiðis en emmm.... þori ekki að lofa neinu. hlakka til að sjá ykkur öll á morgun og svo í new york....
Posted by audur at 08:09 EH | Comments (2801)